Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ragnheiður Erla Bjarnadóttir látin

Read Full Article →

Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin, 72 ára að aldri. Hún varð landsþekkt fyrir þátttöku í spurningakeppnum í Sjónvarpinu á níunda áratugnum og var dómari og spurningahöfundur í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna þrívegis, árin 1991, 1992 og 1997. Morgunblaðið greinir frá andláti hennar í dag, en hún lést á Landspítalanum 19. mars. Ragnheiður Erla vakti mikla athygli fyrir skemmtilega framkomu í dómarahlutverkinu í Gettu betur og var í viðtali í heimildaþáttunum Gettu betur í 40 ár sem sýndir voru á RÚV í síðasta mánuði. Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir sem varð landsþekkt fyrir þátttöku og stjórn í spurningaþáttum í sjónvarpinu er látin, 72 ára að aldri. Þar sagðist hún ávallt hafa haft áhuga á spurningakeppnum. Þegar hún tók að sér að semja spurningar fyrir Gettu betur bjó hún til efnisflokkakerfi og vandaði vel til verka. Hún hringdi meðal annars í sovéska sendiráðið til að fá upplýsingar um landafræði landsins. Kom sú beiðni giska flatt upp á viðmælandann. Úr líffræði í guðfræði og fornleifafræði Ragnheiður Erla fæddist 7. maí 1953. Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason og Alma Thorarensen. Hún ólst upp í Skerjafirði frá sjö ára aldri. Hún nam leiklist og söng og lauk B.Sc.-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1976 og embættisprófi í guðfræði frá sama skóla árið 1987. Hún var vígð til prests 1988 og var sóknarprestur á Raufarhöfn á árunum 1988 til 1991. Þá lauk hún MA-prófi í fornleifafræði frá Boston University árið 1997. Sneri sér að ferðaþjónustu Eftir að Ragnheiður sneri heim frá Bandaríkjunum vann hún að mestu við ferðaþjónustu og sérhæfði sig í ferðum tengdum kirkjum, þjóðsögum, Íslendingasögum, bókmenntum, grasafræði, fossum, jarðfræði og fornleifafræði. Hún stundaði síðar sjálfstæðar rannsóknir, meðal annars á íslenskum altaristöflum. Ljóðabók Ragnheiðar Erlu, Grænt líf, kom út 1973 en hún gaf líka út spurningabækurnar Gettu nú og Gettu betur árin 1992 og 1993. Ragnheiður var ógift og barnlaus. Systkini hennar eru Helga Hrefna Bjarnadóttir og Stefán Örn Bjarnason. Útför Ragnheiðar fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 8. apríl klukkan 15.

Share this article