Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.3.2026 | 6:00 Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin, á 73. aldursári. Setja bókamerki Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir lést á Landspítalanum 19. mars sl., 72 ára. Ragnheiður fæddist 7. maí 1953 og ólst upp í Skerjafirði frá sjö ára aldri. Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason og Alma Thorarensen. Síðustu árin bjó Ragnheiður að Klapparstíg 5a í Reykjavík. Ragnheiður var í Ísaksskóla, Melaskóla, Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1973. Hún var einn vetur í Leiklistarskóla SÁL, stundaði nám í einsöng hjá Nönnu Egils Björnsson og hjá Svanhvíti Egilsdóttur, við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan burtfararprófi, og stundaði einkanám í söng í Vínarborg 1979-86. Hún lauk B.Sc. prófi í líffræði frá HÍ 1976, stundaði nám í guðfræði við HÍ frá 1982 og lauk embættisprófi í guðfræði 1987, stundaði nám í fornleifafræði við Boston University frá 1993 og lauk þaðan MA-prófi í fornleifafræði 1997. Hún sótti námskeið í leiðsögn hjá Ferðaskrifstofu ríkisins 1974 og við MK veturinn 1991-92. Ragnheiður var vígð til prests 1988 og var sóknarprestur á Raufarhöfn 1988-91. Eftir heimkomu úr námi í fornleifafræði við Boston University vann hún að mestu við ferðaþjónustu bæði innanlands sem utan. Hún starfrækti um tíma ferðaþjónustuna Storð, öðru nafni Green Energy Travel Iceland, ásamt Magnúsi R. Kjartanssyni leiðsögumanni og skipulagði ferðir sem og fór með hópa vítt og breitt um landið. Hennar sérhæfing við gerð sérferða innanlands var mikil og má þar nefna ferðir tengdar kirkjum, þjóðsögum, Íslendingasögum, bókmenntum, grasafræði, fossum, jarðfræði og fornleifafræði. Hún stundaði síðar sjálfstæðar rannsóknir, m.a. á íslenskum altaristöflum. Ragnheiður keppti í spurningakeppninni Meistarinn á Stöð 2, 1987, og bar þar sigur út býtum. Hún keppti einnig með liði Reykjavíkur, ásamt Illuga Jökulssyni og Guðjóni Friðrikssyni, í spurningakeppninni Hvað heldurðu í Ríkissjónvarpinu veturinn 1987-88 en þau unnu keppnina. Hún var dómari og spurningahöfundur fyrir þætti RÚV, Gettu betur , árin 1991, 1992 og 1997. Ljóðabók Ragnheiðar Erlu, Grænt líf , kom út 1973 auk þess sem spurningabækur hennar, Gettu nú og Gettu betur , komu út árin 1992 og 1993. Ragnheiður var ógift og barnlaus. Systkini hennar eru Helga Hrefna Bjarnadóttir, f. 1955, og Stefán Örn Bjarnason, f. 1957. Útför Ragnheiðar fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 8. apríl kl. 15. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ástríða og orka í kafaldsbyl Hamas-liðar á Höfðatorgi Óvíst um afdrif umsóknar Liverpool fær ekki krónu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Starfsfólk sé ekki eitt með barni Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Mest lesið Í gær Í vikunni Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Ástríða og orka í kafaldsbyl Hamas-liðar á Höfðatorgi Óvíst um afdrif umsóknar Liverpool fær ekki krónu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir fjáraukalög hafa verið brotin Getur hæglega endað með gosi Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Mest lesið Í gær Í vikunni Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vill opna úrræði fyrir mæður með fíknivanda Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article