Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Myndlistarkonan Rúna látin

Read Full Article →

Myndlistarkonan Sigrún Guðjónsdóttir, sem alltaf var kölluð Rúna, er látin. Rúna var meðal ástsælustu myndlistarmanna þjóðarinnar og starfaði á sviði málverka, leirlistar, hönnunar og myndlýsinga og hafði mótandi áhrif á nokkrar kynslóðir Íslendinga, fullorðinna og barna. Rúna fæddist 15. nóvember 1926 og ólst upp í Hafnarfirði, dóttir hjónanna Guðjóns Guðjónssonar skólastjóra barnaskólans og Ragnheiðar Jónsdóttur rithöfundar. Eiginmaður hennar var Gestur Þorgrímsson myndhöggvari, hann lést árið 2003. Börn þeirra eru Þorgrímur blaðamaður, Ragnheiður rithöfundur og myndlistarmaður, Guðjón Ingi hugbúnaðarverkfræðingur og Ingibjörg Þóra fatahönnuður. Sem unglingur nam Rúna við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk þaðan kennaraprófi þegar hún var 18 ára. Síðan hélt hún til náms í málaralist við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Gestur eiginmaður hennar lærði höggmyndalist á sama stað. Þau komu heim frá Kaupmannahöfn sumarið 1947 með ungt sveinbarn og stofnuðu ásamt fleiri listamönnum leirmunagerðina Laugarnesleir. Árið 1974 vann Rúna samkeppni um gerð veggplatta í tilefni þjóðhátíðar og í kjölfarið skrifaði hún fyrst Íslendinga undir samning við dönsku Bing & Gröndahl-verksmiðjuna sem hún átti í farsælu samstarfi við sem og Villeroy & Boch við gerð nytjagripa og myndskreyttra flísa. Rúna myndskreytti nokkurn fjölda bóka á sjöunda áratugnum og voru léttar og stílhreinar myndir hennar ferskur andblær inn í myndheim íslenskra bókaskreytinga. Rúna skrifaði einnig og myndskreytti barnabókina Rauði fiskurinn. Stærri verk Rúnu má sjá víðs vegar á opinberum stöðum, svo sem í höfuðstöðvum ÁTVR á Stuðlahálsi í Reykjavík og í anddyri Seljakirkju í Breiðholti. Þekkt verk Rúnu og Gests er fyrir ofan inngang Laugardalshallar, lágmynd af líflegum íþróttagörpum úr grópum hábrenndum steinleir sem fyrst var hannað fyrir gömlu stúku Laugardalsvallar. Rúna starfaði auk þess við myndlistarkennslu og var farsæll og dáður kennari. Hún vann náið með félagsmálum myndlistarmanna og var fyrsta konan sem veitti félagssamtökum myndlistarmanna forystu. Hún var fyrsti bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar árið 2005 og var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2014. Árið 2023 voru henni veitt heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands fyrir framlag sitt til leirlistar og brautryðjendastarf á því sviði hér á landi. Í viðtali við Höllu Harðardóttur í Víðsjá undir lok síðasta árs sagði Rúna að það mikilverðasta í heiminum væri að vera ekki einmana og eiga fjölskyldu og vini. „Það er þetta sem gefur lífinu gildi. Og fallegir hlutir, fegurðin,“ sagði hún.

Share this article