Innlent | Morgunblaðið | 17.4.2026 | 7:00 Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Gunnsteinn Rúnar Gíslason. Setja bókamerki Gunnsteinn Rúnar Gíslason, lengi forystumaður í Árneshreppi á Ströndum, er látinn, 93 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 13. apríl síðastliðinn. Gunnsteinn R. Gíslason fæddist 4. desember 1932; sonur Gísla Guðlaugssonar og Gíslínu Vilborgar Gunnsteinsdóttur, bænda í Steinstúni í Norðurfirði á Ströndum. Albræður Gunnsteins voru Guðlaugur, Ólafur Andrés og Ágúst. Uppeldisbræður hans voru Trausti Magnússon og Hilmar Hjartarson. Átján ára gamall fór Gunnsteinn í Reykjaskóla í Hrútafirði og nam þar 1950-1952. Haustið 1952 fór hann í Samvinnuskólann, sem var undir stjórn Jónasar Jónssonar frá Hriflu, og var þar einn vetur. Haustið 1955 réð hann sig sem kennara við Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi og starfaði þar í fimm vetur. Eftir það tók við hans eiginlega ævistarf. Gunnsteinn var kaupfélagsstjóri Kaupfélags Strandamanna frá 1960 til 1993 og útibússtjóri Kaupfélags Steingrímsfjarðar í Norðurfirði eftir það til 2009. Hann var kjörinn í sveitarstjórn Árneshrepps árið 1958 og var oddviti frá 1971. Hann hvarf úr sveitarstjórn 2006, þegar hann baðst undan endurkjöri eftir 48 ára setu. Lengi var Gunnsteinn hafnarstjóri í Norðurfirði og rak gistiheimilið Bergistanga í 25 ár, frá 1997. Hann var formaður sóknarnefndar Árnessóknar frá 1986 til 2021. Þá gerði Gunnsteinn út trillurnar Óskar 1, Óskar 2 og Óskar 3 frá árinu 1966 til 2019 á grásleppu, var á skaki og hákarlaveiðum. Eiginkona Gunnsteins var Margrét Jónsdóttir, f. 1939, frá Stóru-Ávík á Ströndum. Börn þeirra eru Jón Unnar, f. 1962, Gíslína Vilborg, f. 1964, Guðrún, f. 1966, Gísli Baldvin, f. 1970, og Álfheiður Hildur, f. 1977. Síðustu ár bjuggu Gunnsteinn og Margrét á Akranesi. Minningarathöfn fer fram í Akraneskirkju næsta mánudag kl. 13 og útför í Árneskirkju á Ströndum 23. apríl, sumardaginn fyrsta, kl. 14. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Aðsend grein: Ýktar sögur af andláti 53 ára kryddpía í þrusuformi Fólk flykkist heim þrátt fyrir viðvaranir Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vinsælum veitingastöðum lokað Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Veruleg skerðing á bílastæðum Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Kennarasambandið braut jafnréttislög Óvíst um virkni rofni samband Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Ósmitbærum sjúkdómum fjölgar hratt Veruleg skerðing á bílastæðum X26: Hiti í pólitíkinni í Eyjum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Aðsend grein: Ýktar sögur af andláti 53 ára kryddpía í þrusuformi Fólk flykkist heim þrátt fyrir viðvaranir Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Sigmundur Davíð lét ekki segjast Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Kennarasambandið braut jafnréttislög Óvíst um virkni rofni samband Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Ósmitbærum sjúkdómum fjölgar hratt Veruleg skerðing á bílastæðum X26: Hiti í pólitíkinni í Eyjum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá