Innlent | Morgunblaðið | 6.3.2026 | 6:00 Andlát: Eysteinn Helgason Eysteinn Helgason. Setja bókamerki Eysteinn Helgaon fv. framkvæmdastjóri lést á Landspítalanum 4. mars, 77 ára að aldri. Eysteinn fæddist í Reykjavík 24. september 1948. Foreldrar hans voru Helgi Eysteinsson, verslunarmaður í Geysi, og Kristín Olga Jónsdóttir húsmóðir. Eysteinn fluttist ungur að árum í Smáíbúðahverfið þar sem fjölskyldan settist að í Steinagerði 11. Hann gekk í Breiðagerðisskóla, Réttarholtsskóla og Verzlunarskóla Íslands. Eysteinn útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá HÍ árið 1973. Á námsárunum starfaði hann sem fararstjóri á erlendri grundu og var þátttakandi í brautryðjendastarfi í sólarlandaferðum Íslendinga á 7. áratugnum. Eysteinn starfaði hjá Sölustofnun lagmetis frá 1973 til 1977. Hann var framkvæmdastjóri Samvinnuferða, síðar Samvinnuferða-Landsýnar, 1977-1984. Eysteinn hóf störf hjá Iceland Seafood í Harrisburg í Pennsylvaníu árið 1984. Hann var ráðinn forstjóri fyrirtækisins 1985 og gegndi starfinu til 1988. Hann var framkvæmdastjóri Plastprents frá 1988 til 1999. Starfaði síðar hjá Eignarhaldsfélaginu Alþýðubankanum (EFA). Þaðan lá leiðin til Kaupáss árið 2003. Eysteinn var ráðinn framkvæmdastjóri Kaupáss 2006 og gegndi starfinu til 2014. Hann sat í stjórnum nokkurra fyrirtækja sem og hagsmunasamtaka atvinnurekenda, þ. á m. SVÞ og SA. Eysteinn var ötull í starfi knattspyrnufélagsins Víkings og sinnti þar ýmsum stjórnarstörfum. Hann var formaður handknattleiksdeildar á 8. og 9. áratugnum og var þá leiðandi í að ráða til starfa pólska þjálfarann Bogdan Kowalczyk. Með ráðningu Bogdans hófst eitthvert sigursælasta skeið íslensks félagsliðs í íþróttum og áhrifa Bogdans og lærisveina hans gætir enn í íslenskum og alþjóðlegum handknattleik. Eysteinn átti sæti í aðalstjórn Víkings kringum 1990 og var varaformaður um skeið. Hann sat ásamt Jóni Valdimarssyni í byggingarnefnd nýs íþróttahúss og félagsheimilis Víkings, Víkurinnar, sem var vígt 1991. Eysteinn varð heiðursfélagi Víkings árið 2014. Þá sat hann um skeið í stjórnum Golfklúbbs Reykjavíkur og Hjálparstofnunar kirkjunnar. Eftirlifandi eiginkona Eysteins er Kristín Inga Rútsdóttir frá Vík í Mýrdal. Börn þeirra eru Kristín Björg, f. 1972, Helgi Ingólfur, f. 1976, og Helga Rut, f. 1981. Barnabörnin eru sjö. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hálfíslensk frumraun slær í gegn Hvassviðri með slyddu eða rigningu Hafði í fórum sínum tvo hnífa og piparúða Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Öryggið er fyrir öllu“ Aldrei gerst að dögum sé bætt við „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslenska mest töff tungumál í heimi Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Hafnarsjóður greiðir risunum 91 milljón „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Koma ekki í ár – endurkoma ekki útilokuð Tölvupósturinn var ekki mistök Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Hálfíslensk frumraun slær í gegn Hvassviðri með slyddu eða rigningu Hafði í fórum sínum tvo hnífa og piparúða Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Norðmenn pikkfastir í Mið-Austurlöndum Kynnir þingsályktunartillögu um ESB-málið á morgun Íslenska mest töff tungumál í heimi Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Snjókoma og hvassviðri í kortunum Íslenska mest töff tungumál í heimi Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Leigubílalögum breytt: Fyrra kerfi aftur tekið upp Hafnarsjóður greiðir risunum 91 milljón „Eignarrétturinn er friðhelgur“ Koma ekki í ár – endurkoma ekki útilokuð Tölvupósturinn var ekki mistök Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga