Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Eyvindur Erlendsson

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.5.2026 | 6:00 Andlát: Eyvindur Erlendsson Eyvindur Erlendsson er látinn. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Eyvindur Erlendsson leikstjóri er látinn, 89 ára að aldri. Hann fæddist í Grindavík 14. febrúar 1937 og ólst upp í Dalsmynni í Biskupstungum. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 6. maí sl. Kona Eyvindar var Sjöfn Halldórsdóttir, f. 17.1. 1939, d. 5.9. 2018. Börn þeirra eru: Ásta Guðrún, f. 24.5. 1959, d. 16.5. 1998, listmálari; Heiðrún Dóra, f. 25.5. 1960, mannfræðingur og bókasafnsfræðingur, Reynir Þór, f. 19.3. 1963, rafmagnsverkfræðingur, Heimir, f. 14.4. 1968, tónlistarmaður og skólastjóri, og Erlendur, f. 26.7. 1976, tölvunarfræðingur og flugmaður. Eyvindur Erlendsson ræddi við Sunnudagsblað Morgunblaðsins á síðasta ári. mbl.is/Árni Sæberg Eyvindur stundaði nám við Iðnskólann á Selfossi og lauk þaðan sveinsprófi í húsgagnasmíði 1959, stundaði nám við Myndlistarskólann í Reykjavík 1960, stundaði nám við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og lauk BA-prófi í leikstjórn frá Leiklistarháskólanum í Moskvu 1967 þar sem hann var í námi í sex ár en kom heim á sumrin til fjölskyldu sinnar og vann þá aðallega í smíðavinnu. Eyvindur var sjálfstætt starfandi leikstjóri, leikari, rithöfundur, þýðandi, gagnrýnandi, myndlistarmaður, trésmiður og bóndi. Eyvindur flutti Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstudaginn langa um árabil, skrifaði bækur og samdi leikverk og kvikmyndahandrit. Í viðtali við Morgunblaðið í október sl. sagðist Eyvindur hafa verið í list frá upphafi. Hann tók þátt í ritgerðasamkeppni Ríkisútvarpsins þegar hann var í kringum fermingu og vann fyrstu verðlaun í sínum aldursflokki. Spurður um annað listform en leiklistina sagðist hann fyrst og fremst vera teiknari og málari. Foreldrar Eyvindar voru Erlendur Gíslason, f. 28.11. 1907, d. 23.9. 1997, sjómaður og síðar bóndi í Dalsmynni í Biskupstungum, og Guðrún Guðmundsdóttir, f. 4.12. 1911, d. 4.9. 1976, húsfreyja. Systkini Eyvindar eru Hreinn, sem er látinn, Örn, Sigrún og Edda Ragnhildur. Eyvindur ræddi við Sunnudagsblað Morgunblaðsins í október á síðasta ári. Frétt af mbl.is „Og hvernig á svo að lát´ann í gang?" „Ég held að ég sé fyrst og fremst teiknari og málari. Það er þannig að þegar ég mála málverk þá gleymi ég mér alveg og gleymi meira að segja að reykja og er ég nú reykingamaður töluverður,“ sagði Eyvindur í viðtali á síðasta ári. mbl.is/Árni Sæberg Blogga um frétt Innlent » INN­LENT „Allt ægi­lega flókið bla bla“ INN­LENT Hvað var hann að gera á Íslandi? INN­LENT „Ég setti X við D í fyrsta sinn á æv­inni“ INN­LENT Tók strætó norður og sló fjög­ur Íslands­met INN­LENT Er­lend­ir rík­is­borg­ar­ar bera uppi íbúa­fjölg­un­ina INN­LENT Hjón sitt á hvor­um list­an­um INN­LENT Eld­hress amma vann millj­ón INN­LENT Upp­sögn­in ekki í sam­hengi við fleiri INN­LENT Langaði að gubba af þreytu INN­LENT Schengen: „Við óttuðumst það sem varð“ INN­LENT „Já­kvætt að menn séu að ræða sam­an“ INN­LENT Sverr­ir og Fríða gengu hraðast INN­LENT „Ég vil svara fyr­ir mig núna“ VIÐSKIPTI Gengi Icelanda­ir lækk­ar í skugga kjara­deilu ÍÞRÓTT­IR Ekki hægt að lýsa því hvað þetta er mik­il­vægt ÍÞRÓTT­IR Gott á Krókn­um en all­ir veit­ingastaðir full­bókaðir INN­LENT Íris Helga ákærð fyr­ir umsát­ur­seinelti og rang­ar sak­argift­ir INN­LENT Aðkom­an væg­ast sagt öm­ur­leg INN­LENT Golf­klúbb­um óheim­ilt að hafna fé­lagsaðild INN­LENT Útkall á hæsta for­gangi vegna aflvana skips INN­LENT Sund­höll­in læst í mánuð: Sjö laug­um lokað í sum­ar INN­LENT Seg­ir góðmennsk­una í raun vera grimmd INN­LENT „Garðabær fylli­lega sjálf­bær fjár­hags­lega“ INN­LENT Fram­bjóðandi sagðist vilja „skjóta“ sviðsstjór­ann INN­LENT Stjörnu­grís­mál­ið: „Vatn á myllu mis­jafnra“ INN­LENT Lög­regl­an lýs­ir eft­ir fjór­menn­ing­um INN­LENT Útil­oka sam­starf við hvort annað VIÐSKIPTI Kar­en Björk ráðin til Rast­ar INN­LENT Veik­leiki í Innu: „Lít­um málið mjög al­var­leg­um aug­um“ INN­LENT Umræðan vek­ur ugg meðal lækna INN­LENT Flug­menn Icelanda­ir neita að stökkva til INN­LENT X26: Odd­vit­ar í Reykja­nes­bæ mæt­ast Sækja fleiri fréttir Nýjast á mbl.is » „Lést þennan litla skíthæl heyra það“ Mökunarköllin að gera íbúana brjálaða „Allt ægilega flókið bla bla“ „Ég verð að viðurkenna það að mér leið mjög illa“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Umræðan Vilja borg­ar­bú­ar al­vöru­breyt­ing­ar? Evr­ópa: Op­inn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » FLEIRA ÁHUGAVERT Flugmenn Icelandair neita að stökkva til „Ég vil svara fyrir mig núna“ Umræðan vekur ugg meðal lækna Viðræðum um Grænland miðar vel MEST LESIÐ Í GÆR Í VIKUNNI „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ „Allt ægilega flókið bla bla“ Hvað var hann að gera á Íslandi? Tók strætó norður og sló fjögur Íslandsmet Hjón sitt á hvorum listanum „Ég vil svara fyrir mig núna“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Umræðan vekur ugg meðal lækna Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Aðkoman vægast sagt ömurleg

Share this article