Innlent | Morgunblaðið | 13.3.2026 | 6:13 Andlát: Þórir Einarsson Þórir Einarsson Setja bókamerki Þórir Einarsson fv. ríkissáttasemjari er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík 6. mars, 92 ára að aldri. Þórir fæddist í Reykjavík 2. október 1933. Foreldrar hans voru Einar Óskar Ástráður Þórðarson húsgagnasmíðameistari (1905-1979) og Guðmunda Laufey Guðmundsdóttir (1904-1993). Systkini Þóris voru Þorsteinn Hörður og Sigríður Erna. Þórir varð stúdent frá MR árið 1953, lauk cand. oecon.-prófi í viðskiptafræði frá HÍ 1957 og stundaði framhaldsnám í Hamborg 1957-1960. Að námi loknu varð hann sérfræðingur hjá Iðnaðarmálastofnun Íslands 1961-1971 og réðst síðan til starfa við viðskiptadeild HÍ, fyrst sem lektor, síðan sem dósent og loks sem prófessor með kennslu og umsjón í stjórnun og skyldum greinum frá 1974-1995. Eftir það tók hann við starfi ríkissáttasemjara og gegndi því í níu ár. Þórir kenndi víða, m.a. við verkfræðideild HÍ, Tækniskóla Íslands og Verkstjórnarfræðsluna. Þá var hann formaður Félags viðskipta- og hagfræðinga og Bandalags háskólamanna. Hann var í hópi manna sem breyttu BHM úr fræðafélagi í kjarasamtök. Þórir var deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar 1976-1978 og 1986-1988. Hann tók virkan þátt í akademískri stjórnsýslu HÍ og starfaði í ýmsum nefndum og ráðum á vegum skólans. Ritstörf Þóris tengdust upphafi stjórnunarfræða á Íslandi í starfi HÍ. Auk þess ritaði hann, ásamt Terry G. Lacy, íslensk-enska og ensk-íslenska viðskiptaorðabók. Árið 2002 fékk Þórir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu og 2008 veitti viðskiptadeild HÍ honum doktorsnafnbót í heiðursskyni fyrir uppbyggingu náms í stjórnun og skyldum greinum. Þá tók hann virkan þátt í félagsstarfi og var m.a. stofnfélagi Rótaryklúbbs Árbæjar. Eftirlifandi eiginkona Þóris er Renate Jóhanna Einarsson, leiðbeinandi og löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi, f. 1941 í Slésíu, þá Þýskalandi. Synir Þóris og Renate eru Marteinn handritshöfundur, búsettur á Írlandi, f. 1966, og Einar Gunnar viðskiptafræðingur cand. oecon., f. 1969. Barnabörnin eru sex. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Snjókoma um norðanvert landið Andlát: Þórir Einarsson Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Þurfti að sannfæra landamæraverðina Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varðskipin verði oftar við gæslustörf Vara við árásum á hafnir við Hormússund Borga ekki umferðarsektir Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flytur mál fyrir Hæstarétti Færð getur spillst víða í nótt Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Einstakar haglabyssur sýndar um helgina Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Rangt að bærinn hafi lokað safninu Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu „Ósatt, bara lygar“ Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Snjókoma um norðanvert landið Andlát: Þórir Einarsson Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Þurfti að sannfæra landamæraverðina Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Síminn að kaupa miðla Sýnar Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flytur mál fyrir Hæstarétti Færð getur spillst víða í nótt Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Einstakar haglabyssur sýndar um helgina Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Rangt að bærinn hafi lokað safninu Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu „Ósatt, bara lygar“ Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu