Innlent | Morgunblaðið | 16.3.2026 | 19:50 Ágúst mikilvægur tengiliður fræðasamfélags og atvinnulífs Ásta Dís Óladóttir prófessor við viðskiptafræðideild, Margrét Sigrún Sigurðardóttir forseti viðskiptafræðideildar, dr. Ágúst Einarsson og Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor HÍ við athöfnina á þriðjudaginn. Ljósmynd/Hari Setja bókamerki Dr. Ágúst Einarsson var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands sl. þriðjudag. Hann er sæmdur nafnbótinni fyrir framúrskarandi framlag sitt til viðskiptafræða, rannsókna og samfélagsumræðu á Íslandi. Ágúst veitti viðurkenningunni viðtöku að viðstöddu fjölmenni í hátíðarsal HÍ. Ágúst Einarsson lauk prófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Hamborg, stundaði framhaldsnám í hagfræði við háskólana í Kiel og Hamborg og lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Hamborg árið 1978. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri í sjávarútvegi og síðar sem prófessor í rekstrarhagfræði við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Þá var hann rektor og prófessor við Háskólann á Bifröst. Rannsóknir hans og kennsla hafa einkum beinst að rekstrarhagfræði, menningarhagfræði, sjávarútvegi og skapandi greinum, að því er fram kemur í umfjöllun á vef HÍ. Ágúst Einarsson með fáeinar bækur úr veglegu safni sínu árið 2017. Í baksýn er mynd af föður hans. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson Ágúst hefur ritað yfir þrjátíu bækur á íslensku og ensku og lagt sérstaka áherslu á að efla íslenskt fræðamál á sínu sviði. Hann er talinn frumkvöðull rannsókna á hagrænum áhrifum menningar og skapandi greina hér á landi og hefur fyrir það hlotið viðurkenningar, meðal annars hvatningarverðlaun Samtóns. Hann var alþingismaður, var fulltrúi Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og átti sæti í þingmannanefnd EFTA/EES. Hann sat einnig í fjölmörgum nefndum og stjórnum á vegum hins opinbera og atvinnulífs, meðal annars sem formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, formaður samninganefndar ríkisins og formaður Framtakssjóðs Íslands, auk setu í stjórnum Landsvirkjunar og Borgarleikhússins. Frétt af mbl.is Gáfu kirkjunni málverk „Ágúst hefur með rannsóknum sínum, kennslu og þátttöku í opinberri umræðu verið mikilvægur tengiliður fræðasamfélags og atvinnulífs og lagt fram veigamikið framlag til viðskiptafræðinnar. Af þessum sökum telur viðskiptafræðideild Háskóla Íslands sér það sæmdarauka að heiðra Ágúst Einarsson með nafnbótinni doctor mercatoriae honoris causa,“ sagði Ásta Dís Óladóttir, prófessor við viðskiptafræðideild, þegar hún kynnti rökstuðning deildarinnar vegna heiðursdoktorsnafnbótarinnar. mbl.is/Golli Í ræðu sinni lagði Ágúst meðal annars áherslu á mikilvægi menntunar. „Ég hef unnið við margt um ævina en alltaf haft mest gaman af því að kenna, grúska og skrifa. Kennsla er einstakt starf. Kennarar eru nær þeir einu sem geta virkilega haft varanleg góð áhrif á ungt fólk. Þetta eru forréttindi sem venjulega aðeins foreldrar búa við. Þess vegna finnst mér kennsla svo gefandi starf,“ sagði hann meðal annars. Frétt af mbl.is Einstakt bókasafn til Eyja Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Við vitum ekki hver leiðtogi þeirra er“ Ágúst sæmdur heiðursdoktorsnafnbót Tímabilið búið hjá landsliðskonunni Losnaði við bláa skeggið 675 dögum síðar Segir Kristrúnu ekki svara spurningum Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Fólk úr öllum áttum fyllti hótelið Mikill reykur úr skíðlogandi rútu á Völlunum Búið að slökkva eldinn í rútunni Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » „Við vitum ekki hver leiðtogi þeirra er“ Ágúst sæmdur heiðursdoktorsnafnbót Tímabilið búið hjá landsliðskonunni Losnaði við bláa skeggið 675 dögum síðar Segir Kristrúnu ekki svara spurningum Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óskýr svör ráðherra um aðlögun Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Spurði um hæfi Ölmu ráðherra One Battle After Another sigurvegari kvöldsins Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir