Innlent | Morgunblaðið | 23.2.2026 | 6:00 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Ellen Margrét Ingvadóttir Setja bókamerki Ellen Margrét Ingvadóttir, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi, lést 20. febrúar sl., 73 ára að aldri. Ellen fæddist 13. janúar 1953 í Ås í Noregi. Foreldrar hennar voru hjónin Ingvi Þ. Þorsteinsson náttúrufræðingur (1930-2024) og Liv Synnøve Eriksen Þorsteinsson sjúkraliði (1935-2009). Systur Ellenar eru Gyða Martha og Kristín. Systur hennar samfeðra eru Anna Steinunn og Nanna Hlíf. Ellen setti fyrsta Íslandsmetið 12 ára gömul, sex mánuðum eftir að hún fór að æfa sund. Á sundferli sínum setti hún fjölmörg Íslands- og Norðurlandamet. Aðalkeppnisgreinin var bringusund en hún keppti einnig í skriðsundi og fjórsundi. Ellen fór 15 ára fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikana í Mexíkó, keppti í bringusundi og skriðsundi. Ellen starfaði um skeið í íslensku utanríkisþjónustunni í New York. Hún var sölustjóri og settur framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Landsýnar. Við tóku 11 ár í bandaríska sendiráðinu hér á landi. Hún lauk löggildingarprófi dómtúlka og skjalaþýðenda og stofnaði árið 1992 fyrirtækið Þýðingar og textaráðgjöf, sem hún starfaði við í liðlega 30 ár. Hún sat um árabil í prófstjórn dómsmálaráðuneytisins vegna löggildingarprófa fyrir skjalaþýðendur og dómtúlka. Hún var virk í starfi Félags löggiltra dómtúlka og skjalaþýðenda og var kosin heiðursfélagi þess haustið 2025. Hún sat í stjórn Kvenréttindafélags Íslands og var ritstjóri tímarits þess um nokkurra ára skeið. Ellen var virk í stjórnmálastarfi Sjálfstæðisflokksins, gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, var formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna og sat í Jafnréttisráði. Ellen var fyrst kvenna umdæmisstjóri íslenska Rótarýumdæmisins, 2008-2009. Árið 2000 var Ellen eina konan í níu manna áhöfn víkingaskipsins Íslendings sem fór í fjögurra mánaða ferð til Grænlands, Nýfundnalands, Nova Scotia og á austurströnd Bandaríkjanna í kjölfar Leifs heppna. Til undirbúnings lauk Ellen réttindaprófi frá Stýrimannaskólanum til að stýra minni skipum. Ellen kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Þorsteini Inga Kragh, fyrir tæpum 50 árum. Þau voru barnlaus en Þorsteinn á þrjú börn af fyrra hjónabandi, Guðríði, Björgvin og Hrafn. Fyrri maður Ellenar var Örn Valberg. Þau skildu. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skúrir eða slydduél Handtekinn vegna líkamsárásar Fimm prósent landans á Wegovy Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Myndir sýna hvernig sinueldurinn breiddist út „Almenningur ekki að hjálpa til“ Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Mest lesið Í gær Í vikunni Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Stefán í spennufalli og Finnur undir feldi Myndir sýna hvernig sinueldurinn breiddist út Sendir frá sér yfirlýsingu vegna Kúbuferða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Hægir á byggingu íbúða næstu árin Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Skúrir eða slydduél Handtekinn vegna líkamsárásar Fimm prósent landans á Wegovy Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forstjóri Norðuráls: Tekur 90 daga Telur að Guðmundarlundi hafi verið bjargað Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Þurftu að súpa eitur áratugum saman Mest lesið Í gær Í vikunni Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Stefán í spennufalli og Finnur undir feldi Myndir sýna hvernig sinueldurinn breiddist út Sendir frá sér yfirlýsingu vegna Kúbuferða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Hægir á byggingu íbúða næstu árin Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka