Innlent | Sunnudagsblað | 21.2.2026 | 22:00 Gengur morðingi laus? Unnur Birna og Þuríður Blær leika í Röskun, sálfræðitrylli. mbl.is/Ásdís L eikkonurnar Unnur Birna Jónsdóttir Backman og Þuríður Blær Jóhannsdóttir buðu blaðamanni upp á skemmtilegt spjall og kaffi vestur í bæ í vikunni. Þær leika saman í sálfræðitryllinum Röskun sem nú er kominn í bíóhús. Handritið skrifaði Helga Arnardóttir og er myndin byggð á samnefndri bók Írisar Aspar Ingjaldsdóttur frá árinu 2019. Leikstjóri er Bragi Þór Hinriksson, eiginmaður Helgu, en saman reka þau fyrirtækið H.M.S. Productions. Spenna lá í loftinu enda voru þær stöllur þá um kvöldið á leið á forsýningu myndarinnar sem þær höfðu aldrei séð áður í heild sinni. Unnur og Blær hafa báðar verið áberandi leikkonur undanfarin ár; Blær á sviði leikhúsanna og í sjónvarpsþáttum og Unnur í sjónvarpi og kvikmyndum. Reynir að bjarga geðheilsunni Kvikmyndin Röskun er komin í bíó. Blær hefur orðið: „Þetta er sálfræðitryllir um lögmann, sem ég leik, sem flytur inn í íbúð í Vesturbænum. Hún er að reyna að tjasla sér saman eftir að hafa orðið fyrir árás árinu áður. Svo fara undarlegir hlutir að gerast í íbúðinni og hún kemst að því að morð hafi verið framið þar stuttu áður og að morðinginn gangi enn laus. Til að reyna að bjarga geðheilsu sinni reynir hún að komast að því hvað hafi raunverulega gerst í íbúðinni. Hún veit ekki hvort hún sé að missa vitið, hvort það sé reimt í íbúðinni eða hvort árásarmaður hennar sitji um hana. Saga hennar fléttast svo saman við sögu konunnar sem var myrt, en Unnur Birna leikur fórnarlambið sem lést í íbúðinni,“ segir hún. Blær leikur lögfræðing sem tekst á við hræðilega hluti í íbúð sinni. „Það var svo fyndið að við Blær lékum nánast aldrei saman! Bara í einni senu,“ segir Unnur. „Sem betur fer fengum við þó að leika smá saman,“ segir Blær en bætir við að þær hafi þekkst lengi, allt frá því að Unnur var unglingur. Tökur fóru fram fyrir einu ári og segja þær stöllur hafa verið mjög skemmtilegt að leika í Röskun. Kreisti hönd kærastans Er þessi mynd að fara að slá í gegn? „Já, fyrir alla unnendur svona mynda. Plottið er gott, frábært handrit og góðir leikarar. Þetta er alvöru klassísk sálfræðitryllismynd. Sagan heldur manni og spennan er mikil,“ segir Blær og viðurkennir að sér finnist alltaf erfitt að sjá sjálfa sig á stórum skjá í fullum bíósal. „Ég kreisti höndina á kærasta mínum allan tímann þannig að hann þarf bara að taka verkjatöflu,“ segir Blær í gríni. Ítarlegt viðtal er við Blævi og Unni í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Salsa-goðsögnin Willie Colon látin Minnti á sig í Portúgal Gengur morðingi laus? Af hverju dreymir okkur fyrrverandi? City andar ofan í hálsmálið á Arsenal Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Fleira áhugavert Bollur Aðalheiðar slá í gegn í Noregi Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Nærri 300 umsagnir um breytingar á útlendingalögum Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Bakkaði ítrekað á hús Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Forstjórinn með stöðu sakbornings Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Talinn vera undir mölinni Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Salsa-goðsögnin Willie Colon látin Minnti á sig í Portúgal Gengur morðingi laus? Af hverju dreymir okkur fyrrverandi? City andar ofan í hálsmálið á Arsenal Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Fleira áhugavert Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Húsleit lögreglu lokið í Sandringham Forstjórinn með stöðu sakbornings Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Bakkaði ítrekað á hús Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Forstjórinn með stöðu sakbornings Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Talinn vera undir mölinni Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi