Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fyrir hverju er beðið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 7.3.2026 | 8:00 Fyrir hverju er beðið Ögmundur Jónasson Ljósmynd/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Úr ólíkum áttum Pistill Ögmundar Jónassonar úr Morgunblaðinu Móðir mín trúði á mátt bænarinnar. Bæði til góðs og til ills. Hún sagði að þegar að væri gáð lægju allir menn á bæn og það öllum stundum. Mikilvægt væri að samsama sig hinu góða og jákvæða í tilverunni. Takmarkið skipti máli. Hitt væri verra þegar hugarorkunni væri beint inn í neikvæðan farveg, höfðað til illra hvata, jafnvel óvildar og haturs. Það var þetta sem hún átti við þegar hún sagði að bænir gætu verið til góðs og ills. Ég er nýkominn frá Rojava, sjálfstjórnarsvæði Kúrda í norðaustanverðu Sýrlandi. Ég var þar á ferð ásamt sérfræðingum í réttarmeinafræði og alþjóðalögum að kanna stöðu mannréttinda á þessu svæði. Við ræddum við fulltrúa yfirvalda, fulltrúa dómskerfisins og kvenréttindasamtaka og við fórnarlömb ofbeldis úr fleiri en einni átt, einnig vitni að mannréttindabrotum. Niðurstöðurnar verða birtar opinberlega þegar sérfræðingarnir hafa lokið vinnu sinni. Á þessu stigi er það eitt að segja að athugun okkar leiddi í ljós hrikaleg brot á mannréttindum. Hve margir hafa sætt ofsóknum, pyntingum eða goldið með lífi sínu er óljóst. En nefna má að ætlað er að tala myrtra í Kúrdahluta Aleppo-borgar sé um fjögur þúsund frá því nú í ársbyrjun. Í fréttum á Vesturlöndum hefur þessa varla verið getið nema í framhjáhlaupi enda sökudólgarnir undir „réttum“ verndarvængjum. Abu Mohamed al-Jolani, Al Nusra-foringinn – áður í fararbroddi IS og al-Qaeda – er nú æðstráðandi í Sýrlandi að því marki sem strengir utanaðkomandi stjórnenda leyfa. Ísrael og Bandaríkin settu hann til valda með stuðningi gömlu nýlenduvelda Evrópu, Bretlands og Frakklands. Morðsveitirnar í Aleppo hafa verið að verki að hans undirlagi en einnig ráðamanna í Tyrklandi sem hafa skipulagt aðförina að Kúrdum um langt árabil. Alræmd var mannskæð stórárás þeirra á borgina Afrin árið 2018. Árásarherinn kenndi hana við grein af ólífutré sem er tákn friðar, „Operation olive branch“ var enska heitið. Þarna lét lífið ungur íslenskur hugsjónamaður, Haukur Hilmarsson, en hann hafði gerst liðsmaður í baráttusveitum Kúrda. Frá því er skemmst að segja að Jolani, eftirlýstur hryðjuverkamaður frá í gær, er í dag umvafinn og faðmaður í Washington og Brussel, samfara því að viðskiptaþvinganir Vesturlanda gagnvart Sýrlandi hafa verið felldar niður. Samráðherrar Jolanis eiga sumir skuggalega fortíð. Til er myndskeið sem sýnir sjálfan dómsmálaráðherrann skjóta kúrdíska konu til bana. Gengst hann við því? Já, mun hann hafa svarað, ég hélt á byssunni en það var vilji guðs sem stýrði hönd minni. Og þar kem ég að grunngildunum, afstöðu til lífs og samfélags. Ég spurði einn talsmanna réttarkerfisins í Rojava hvernig gengi að ná samkomulagi við stjórnina í Damaskus um samþættingu samfélags Kúrda við sýrlenskt samfélag almennt í samræmi við nýgerða samninga þar að lútandi. Hann vildi lítið gefa út á það annað en að reynt yrði til þrautar að ná saman. Þó skildi ég það svo að erfiðlega gengi enda þankagangur samningsaðila gerólíkur. „Stjórn Jolanis stefnir í réttarfar gamalla trúarhefða, við viljum hins vegar réttarfar reist á öðrum samfélagsgildum, ekki síst hvað varðar jafnrétti karla og kvenna.“ Þegar gengið var á viðmælanda okkar sagði hann að þetta væri spurning um hugarfarslega nálgun; hvaða markmið menn settu sér. En nú væri meginverkefnið að ná saman um að stöðva ofbeldið. Fyrir réttu ári, 27. febrúar í fyrra, ákváðu baráttusveitir Kúrda í fjallahéruðum á landamærum Tyrklands að leggja niður vopn og leita friðar að boði Abdullah Öcalan, leiðtoga þeirra sem Tyrkir hafa haldið föngnum í rúman aldarfjórðung. Hann hefur lengi talað fyrir friði en sagði nú að ekki ætti að bíða eftir andstæðingnum, „þú fyrst og svo ég“. Kúrdar ættu að taka frumkvæ ðið og sýna friðarvilja í verki. Enn sem komið er hefur enginn tekið af nokkurri alvöru í útrétta sáttahönd Kúrda enda ráðamenn heimsins með önnur markmið en að friðmælast og sættast. Þvert á móti er nú róið að því öllum árum að hvetja íranska útlaga úr röðum Kúrda í Írak til að ráðast inn í Íran þar sem þeir eiga harma að hefna. Mér varð hugsað til þessa þegar ég sá mynd af leiðtogum Evrópu á bæn í Kænugarði. Þar var að vísu ekki Merz kanslari Þýskalands, sem segist „ekki óttast stríð“ og þenur út þýska herinn sem aldrei fyrr frá heimsstyrjaldarlokum; hann ávarpaði hins vegar „bandalag hinna viljugu“ úr fjarlægð. En í kirkjunni var Von der Leyen, framkvæmdastjóri þess sama Evrópusambands sem lét þá yfirlýsingu frá sér fara fyrir tveimur árum að koma bæri „evrópskum hagkerfum í stríðsham“. Og enn fleiri stríðshaukar voru við bænagjörðina í Kænugarði. Þarna var einnig Kristrún okkar Íslendinga, sem farnir eru að fjármagna vígbúnað, sem aldrei skyldi verið hafa. Samkoman í kirkjunni í Kænugarði kvaðst vera að biðja fyrir friði. Ég held að það sé ekki rétt. Ef rýnt er í orð þeirra og gjörðir væri nær að halda að beðið væri fyrir sigri. Það skiptir máli hvort er. Bænir vísa veginn til verkanna. Sigurviljinn er ekki sá sami og friðarviljinn. Við eigum að taka undir hinn síðari. Ég mæli með því að menn kynni sér friðarákall Kúrda. Þar er beðið fyrir friði. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Þjóðin á betra skilið Fyrir hverju er beðið Fór til Japans í stað þess að halda fermingarveislu Gamla ljósmyndin: Vetrarólympíuleikarnir 1956 Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenska mest töff tungumál í heimi Boða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Varar við hruni íranska ríkisins Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Mest lesið Í gær Í vikunni Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Kristinn Jón felldi Alexöndru Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Ætlaði að aðstoða en hafnaði á milli bíla Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Telja auglýsingu vera löglega Andlát: Árni Árnason Bjarni Benediktsson minnist Davíðs Oddssonar Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Þjóðin á betra skilið Fyrir hverju er beðið Fór til Japans í stað þess að halda fermingarveislu Gamla ljósmyndin: Vetrarólympíuleikarnir 1956 Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enski boltinn „stendur undir sér“ Líklega leggst skólahald af Sigmundur: „Uppgjöf af hálfu ríkisstjórnarinnar“ Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Mest lesið Í gær Í vikunni Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Kristinn Jón felldi Alexöndru Telur áhrif Viðreisnar algjör: „Viðreisn ræður för“ Ætlaði að aðstoða en hafnaði á milli bíla Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Telja auglýsingu vera löglega Andlát: Árni Árnason Bjarni Benediktsson minnist Davíðs Oddssonar Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason

Share this article