Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Hafa platað þúsund Keníamenn á vígvöllinn í Úkraínu

  • What: Over a thousand Kenyans were allegedly deceived and recruited by Russia to fight in the war in Ukraine.
  • Impact: Many were promised well-paid jobs but were forced into combat.
Read Full Article →

Rússar hafa fengið meira en þúsund Keníumenn til að berjast fyrir sig á vígstöðvunum í Úkraínu, flestum var lofað að fá vel launuð störf en síðan neyddir til að fara á víglínuna til bardaga. Þetta kemur fram í skýrslu sem lögð var fyrir þingið í Kenía. Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós að Rússar hafa beitt fjölda manna í Afríku blekkingum til að fá þá til að berjast fyrir sig. Þeim hafa verið boðin góð laun fyrir vinnu í Rússlandi en síðan verið sendir á vígvöllinn. Umfangið er þó mun meira en áður var ljóst samkvæmt nýju skýrslunni á þjóðþingi Kenía. Stjórnvöld hafa spornað gegn þessu en þá hafa menn verið sendir aðrar leiðir til Rússlands. Táknræn útför kenísks manns sem féll í Úkraínu. Lík hans hefur ekki verið flutt til heimalandsins.EPA / Daniel Irungu

Share this article