Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur fólksbíls og strætó Hugrún Hannesdóttir Diego Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans með minniháttar meiðsli eftir árekstur á gatnamótum Sæbrautar og Bústaðavegar í Reykjavík skömmu fyrir klukkan 13:00. Þetta segir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Nokkur viðbúnaður var kallaður út. Lögreglubílar, sjúkrabílar og slökkvibíll voru sendir á vettvang. Fyrir 3 mínútumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Sjáðu: Æsispennandi úrslit í skímó Ein ný grein er á Vetrarólympíuleikunum í ár; fjallaskíði. Greinin kallast ski mountaineering á ensku og er yfirleitt stytt í skimo. Úrslit í sprettgöngu kvenna og karla var nú í dag og óhætt að segja að þau hafi verið spennandi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Krefjast bóta vegna vistar á barnaheimilinu við Hjalteyri Fólk sem var vistað á barnaheimilinu við Hjalteyri á 8. áratugnum hefur gert kröfu á hendur íslenska ríkinu. Kröfur af hálfu þeirra sem dvöldu á barnaheimilinu hafa verið lagðar fram áður, þegar Jón Gunnarsson var dómsmálaráðherra. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Skíði Vilja opna í Bláfjöllum seinna í dag eða á morgun Snjómokstur og færsla á framleiddum snjó er í fullum gangi í Bláfjöllum. Veðurskilyrði síðasta sólarhring hafa reynst krefandi. Rekstarstjóri vonast til þess að hægt verði að opna fyrir skíðafólki seinna í dag eða á morgun. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Hvað tekur við af dollaranum? Ásgeir Brynjar Torfason ræddi í Heimsglugganum um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar og segir millibilsástand „interregnum“ vera í fjármálakerfi heims, dollarinn sé ekki lengur örugg viðmiðunarmynt heimsins og óvíst sé hvað taki við. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Einróma um mikilvægi aðgerða gegn glæpagengjum Skipulögð glæpastarfsemi er vaxandi ógn og við henni þarf að bregðast af fullum mætti. Um þetta voru þingmenn og ráðherra sammála í umræðu um starfsemi skipulagðra glæpasamtaka hér á landi. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Skák Vann Magnus Carlsen sama dag og mamma vann milljón í lottó Stórmeistarinn Vignir Vatnar upplifði besta dag lífs síns þegar hann lagði Magnus Carlsen á móti á vefsíðunni Chess.com. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Súdan Ódæði RSF-uppreisnarhersins benda til þjóðarmorðs Grimmdarverk RSF-uppreisnarhersins í borginni El Fasher í Darfúr í Súdan á seinni hluta síðasta árs bera einkenni þjóðarmorðs. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Andrew handtekinn: konungurinn heitir fullum stuðningi við rannsóknina Andrew Mountbatten Windsor, bróðir Karls Bretakonungs, var handtekinn á heimili sínu í morgun grunaður um misferli í opinberu starfi. Lögregla segir í yfirlýsingu að maður á sjötugsaldri hafi verið handtekinn og að hún hafi ráðist í húsleit í Berkshire og Norfolk. Lögregla leitaði einnig á fyrrum heimili Mountbatten Windsor, Royal Lodge, sem honum var gert að flytja út úr þegar hann var sviptur prinstitli. Lundúnalögreglan hafði verið að skoða ásakanir um að Mounbatten Windsor hafi deilt viðkvæmum upplýsingum með kynferðisbrotamanninum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein, þegar hann var viðskiptaerindreki Bretlands. Leita þarf aftur um nærri 400 ár til að finna sambærilegt dæmi þar sem háttsettur meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar var handtekinn. Það var Karl fyrsti Bretakonungur sem var handtekinn fyrir landráð 1647 og hálshöggvinn tveimur árum seinna. Karl konungur heitir fullum stuðningi og samvinnu konungsfjölskyldunnar við rannsókn yfirvalda í yfirlýsingu. Hvorki hann né breska konungshöllin voru látin vita fyrir fram að til stæði að handtaka Mountbatten Windsor. FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Fleiri Íslendingar telja Bandaríkjamenn andstæðinga en bandamenn Landsmenn eru klofnir í afstöðu sinni til Bandaríkjanna samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Fleiri lýsa þeim sem andstæðingi en bandamanni. Afstaðan er mjög ólík eftir þjóðfélagshópum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Gagnrýna seinagang og telja álit hafa valdið „óafturkræfum skaða“ Forsvarsmenn íþróttafélagsins Aþenu eru ósáttir við hversu langan tíma ráðuneyti hefur tekið sér í að afgreiða kvörtun vegna álits samskiptaráðgjafa Íþrótta- og æskulýðsstarfs á þjálfunaraðferðum körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar „Þetta eru ekki bara Norðmenn á skíðum“ Þeir Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson, sem stýra hlaðvarpinu Steve Dagskrá, kíktu í ólympíukvöld og fóru yfir allt það skemmtilegasta frá Vetrarólympíuleikunum. Slefandi sigurvegari og íshokkíslagsmál voru meðal annars rædd. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Rykbindiefni væntanlegt til landsins um helgina Rykbindiefni er væntanlegt til landsins með skipi um helgina, segir forstöðumaður samskipta hjá Vegagerðinni. Hann telur líklegt að drifið verði í að rykbinda á höfuðborgarsvæðinu við fyrsta tækifæri í næstu viku. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Tvöfalt fleiri veikindadagar á opinberum vinnumarkaði Viðskiptaráð Íslands vill að veikindaréttur opinberra starfsmanna verði færður til jafns við einkageirann. Í nýrri úttekt ráðsins segir að fjarvera opinberra starfsmanna sé tvöfalt algengari en á almennum markaði og veikindaréttur töluvert meiri. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Arkitektar svartsýnir á framhaldið Brynjólfur Þór Guðmundsson Nærri helmingur stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa telur að verkefnum á íbúðamarkaði fækki á næstu tólf mánuðum. Meirihlutinn telur að verkefnin standi í stað en sárafáir telja að þeim fjölgi. Þetta er niðurstaða könnunar Samtaka iðnaðarins. Samkvæmt henni telja 55 prósent stjórnenda að verkefnum hvorki fækki né fjölgi, 43 prósent telja að þeim fækki og aðeins eitt prósent telur að þeim fjölgi. Samtökin könnuðu líka mat stjórnenda verktækjafyrirtækja sem byggja íbúðir á eigin reikning. Þeir telja að nokkurn veginn jafn margar íbúðir verði í byggingu eftir tólf mánuði eins og nú. Háir vextir og hækkanir sveitarfélaga dragi úr framkvæmdum. Unnið að byggingu hótels í miðbæ Reykjavíkur. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kenía Hafa platað þúsund Keníamenn á vígvöllinn í Úkraínu Brynjólfur Þór Guðmundsson Rússar hafa fengið meira en þúsund Keníumenn til að berjast fyrir sig á vígstöðvunum í Úkraínu, flestum var lofað að fá vel launuð störf en síðan neyddir til að fara á víglínuna til bardaga. Þetta kemur fram í skýrslu sem lögð var fyrir þingið í Kenía. Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós að Rússar hafa beitt fjölda manna í Afríku blekkingum til að fá þá til að berjast fyrir sig. Þeim hafa verið boðin góð laun fyrir vinnu í Rússlandi en síðan verið sendir á vígvöllinn. Umfangið er þó mun meira en áður var ljóst samkvæmt nýju skýrslunni á þjóðþingi Kenía. Stjórnvöld hafa spornað gegn þessu en þá hafa menn verið sendir aðrar leiðir til Rússlands. Táknræn útför kenísks manns sem féll í Úkraínu. Lík hans hefur ekki verið flutt til heimalandsins. EPA / Daniel Irungu Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Forsetinn í lífstíðarfangelsi fyrir að reyna að losa sig við þingið Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að lýsa yfir herlögum og senda hermenn til að koma í veg fyrir að þingið gæti starfað. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Söngleikur um Arne Treholt væntanlegur á fjalirnar í haust Til stendur að setja upp söngleik um norska njósnarann Arne Treholt í Nýja leikhúsinu í Osló í september. Textahöfundurinn segir kalda stríðið, ástir, njósnir og valdabrölt tilvalið söngleikjaefni. Viðfangsefninu verði sýnd virðing. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Enn kólnun á fasteignamarkaði Brynjólfur Þór Guðmundsson Enn eru merki kólnunar á fasteignamarkaði samhliða að verð hækkar minna en verið hefur og hlutfallslega fleiri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu seljast undir auglýstu söluverði en áður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Stofnunin hefur kannað hug fasteignasala sem telja nær allir að verðþróun sé ýmist stöðug eða að húsnæðisverð fari lækkandi. Það hefur lækkað að raunvirði síðasta hálfa árið. Hægt hefur á verðhækkunum á leigumarkaði og hefur leiguverðsvísitalan lækkað tvo mánuði í röð. Síðustu tólf mánuði hefur leiguverð lækkað lítillega að raunvirði. Húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. RÚV Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Ég er enn þá sextán ára þó ég sé sjötugur“ Tónlistarmaðurinn KK segist ekki eiga lögin sín lengur heldur þjóðin, hann taki bara stefgjöldin. Hann ætlaði sér aldrei að verða leiðinlegur karl og rifjar upp hvernig hann eyddi aleigunni í gítar á uppboði árið 1980. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Snjóar norðan- og austantil Snjórinn fellur á íbúa á Norðurlandi og Austurlandi í dag. Hvasst verður suðaustanlands. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Indland Bill Gates hættir við ávarp á gervigreindarráðstefnu í skugga Epstein-skjalanna Auðjöfurinn Bill Gates hefur skorast undan að flytja ávarp á fjölmennri gervigreindarráðstefnu á Indlandi. Málefnið þurfi að vera í forgrunni frekar en sú staðreynd að nafn þessa stofnanda Microsoft er að finna í Epstein-skjölunum. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar ÓL dagur 14: Hættar saman en mætast í úrslitaleik og keppt í skímó Það er fjölbreytt dagskrá á Vetrarólympíuleikunum í dag. Úrslitaleikur íshokkí kvenna er klukkan 18:00 en þar mætast Bandaríkin og Kanada. Þær Caroline Harvey frá Bandaríkjunum og Daryl Watts frá Kanada eru hættar saman en mætast nú. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ráðist að ungum dreng með piparúða — málið til rannsóknar Markús Þ. Þórhallsson Lögreglan hefur til rannsóknar árás þar sem piparúða var beitt á ungan dreng í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Lögreglukonur að st