Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lokað í Sundhöll Reykjavíkur vegna bilunar

  • What: The Sundhöll Reykjavíkur swimming pool is closed due to a water pressure failure.
  • Impact: The pool is closed to the public due to lack of water in showers and sinks.
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 36 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Lokað í Sund­höll Reykja­vík­ur vegna bil­un­ar Ásrún Aldís Hreinsdóttir Lokað er í Sundhöll Reykjavíkur vegna bilunar á vatnsþrýstingi. Bilunin veldur því að ekkert vatn er í sturtum og vöskum sundhallarinnar. Snorri Örn Arnaldsson, forstöðumaður Sundhallar Reykjavíkur, segir ekki útlit fyrir að sundlaugin verði opnuð aftur í dag. Snorri segir enn óljóst samspil hvaða þátta valdi bilun á vatnsþrýstingnum, píparar vinni nú að viðgerðum og telur hann að hægt verði að opna laugina aftur í fyrramálið. Innilaug Sundhallar Reykjavíkur. Ljósmynd / Reykjavíkurborg Fyrir 12 mínútumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Koll­hnís Ebbu — „Það á aldrei að vera fræði­leg­ur mögu­leiki að þessi skór fari af“ Það vakti athygli um helgina þegar Ebba Andersson flaug á hausinn í skíðaboðgöngunni og missti skíðið í kjölfarið. Skíðin og festingarnar voru grandskoðaðar í Ólympíukvöldi í gærkvöld. Fyrir 17 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Andlát Jesse Jacks­on látinn Jesse Jackson, predikari og stjórnmálamaður, er látinn. Hann var 84 ára. Hann varð þjóðþekktur í Bandaríkjunum á sjöunda áratug síðustu aldar fyrir baráttu fyrir mannréttindum svartra. Hann var meðal annars með Martin Luther King Jr. þegar hann lést. Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gular við­var­an­ir vegna hríð­ar­veð­urs og skaf­renn­ings Blint getur orðið frá Sandskeiði austur yfir Hellisheiði í kvöld og fram yfir morgunumferðina á morgun. Hætt er við að vegir teppist seint í kvöld syðst á landinu og að ekki rofi til í hríðinni fyrr en eftir hádegi á morgun. Fyrir 49 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Við­ur­kenn­ir að skýra þurfi al­manna­trygg­inga­frum­varp Félags- og húsnæðismálaráðherra viðurkennir að skýra þurfi frumvarp um vísitölutengingu almannatrygginga áður en frumvarpið fer úr velferðanefnd til þriðju umræðu á Alþingi. Ekki sé fótur fyrir þeim dómsdagsspám sem settar hafa verið fram vegna þess. Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Núll­ar­inn – eða nóló­inn – nýtur æ meiri hylli Hillur matvöruverslana svigna undan óáfengum bjór, sem sumir kalla núllara. Sprenging hefur orðið í framleiðslu og sölu og úr mörgu er að velja. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Reykja­vík­ur­leið­in í leik­skóla­mál­um kynnt í dag Reykjavíkurborg boðar töluverðar breytingar á leikskólamálum í dag. Þá verður kynnt Reykjavíkurleiðin svokallaða. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Hefja nýjar frið­ar­við­ræð­ur í Genf í skugga áfram­hald­andi árása Þriðja lota samningaviðræðna Rússa og Úkraínumanna með milligöngu Bandaríkjastjórnar hefst í dag. Ekkert lát var á dróna- og eldflaugaárásum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Bræður dæmdir fyrir lík­ams­árás­ir Bræður voru í síðustu viku sakfelldir fyrir líkamsárásir og þjófnað. Annar þeirra var fimmtán ára þegar hann stakk mann í bakið. Þeir voru dæmdir til að greiða rúmar 14 milljónir í málsvarnalaun, miskabætur og annan kostnað. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Þögnin kostar meira“ Bróðir Sigurðar Ívars Sölvasonar myrti móður þeirra í október 2024. Sigurður efaðist um að hann vildi segja frá dvöl sinni í Bakkakoti í Kveik. Honum varð þó ljóst að þögnin verndar gerendur, sannleikurinn verndar börnin. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Kanna hvort hægt sé að finna Lúðvík Dómsmálaráðuneytið ætlar að greiða kostnað við mat á aðstæðum þar sem maður lenti ofan í sprungu í Grindavík til að hægt sé að meta hvort hægt sé að finna lík mannsins. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Ég vildi sýna að við erum bara öll mann­leg þó að við séum þessir trúðar“ Eftir menntaskóla féll fimleikamaðurinn Jón Sigurður fyrir sirkus og hefur ferðast um landið og heiminn og sýnt listir sínar. Hann veit þó að líkaminn endist ekki að eilífu og fór í nám. Hann einblíndi á mannlegu hliðar listarinnar í lokaverkefni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvass­viðri og snjó­koma sunn­an­til í kvöld Það byrjar að snjóa sunnantil á landinu í kvöld og á Suðurlandi snjóar fram eftir degi á morgun. Vestast á landinu verður hvöss austanátt en norðantil hæg norðlæg átt og smáél við ströndina. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Jak­ob­ína keppti fyrst ís­lenskra kvenna á Vetr­ar­ól­ymp­íu­leik­um og er komin aftur til Cortina 70 árum síðar Jakobína Valdís Jakobsdóttir keppti fyrst íslenskra kvenna á Vetrarólympíuleikum þegar hún tók þátt á leikunum árið 1956. Þá var keppt í Cortina á Ítalíu eins og nú. Jakobína sem er orðin 93 ára er meðal áhorfenda í Cortina þessa dagana. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar ÓL dagur 12: Veisla í skíða­göngu og skíða­skot­fimi Í dag er boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Vetrarólympíuleikunum. Við sjáum norræna tvíkeppni í skíðagöngu og boðgöngu í skíðaskotfimi karla. Auk þess mun bretta- og skíðafólk leika listir sínar í brettastíl og skíðafimi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Banda­ríkja­for­seti úti­lok­ar ekki frek­ari vopna­send­ing­ar til Taívan Bandaríkjaforseti ætlar að ákveða sig fljótlega hvort Bandaríkin sendi fleiri vopn til Taívans. Forseti Kína hefur varað hann við að senda fleiri vopn til eyjarinnar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Clint­on sakar Trump um yf­ir­hylm­ingu í Ep­stein-málinu Clinton-hjónin vilja að vitnisburður þeirra verði opinber þegar þau bera vitni fyrir bandarískri þingnefnd um kynni sín af kynferðisafbrotamanninum Jeffrey Epstein. Hún segir að þau hafi ekkert að fela. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Trump segir Úkra­ínu­mönn­um að semja fljót­lega Brynja Dögg Friðriksdóttir Donald Trump Bandaríkjaforseti ræðir við fjölmiðla um borð í Air Force One. AP / Matt Rourke Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Úkraínumenn ættu að koma sér að samningaborðinu og semja fljótlega. Þetta sagði Trump við fréttamenn um borð í forsetaflugfélinni Air Force One á leið sinni til Washington í gær. Þessi ummæli hans koma skömmu áður en samninganefndir Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna hittast á þríhliða viðræðum í Genf í Sviss. Viðræðurnar standa í dag þriðjudag og á morgun. Áður hafa samninganefndir landanna fundað tvisvar sinnun í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Á sunnudaginn eru fjögur ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Króat­ar hafna beiðni Ung­verja og Slóvaka um ol­íu­flutn­inga frá Rúss­landi Stjórnvöld í Króatíu hafa hafnað beiðni stjórnvalda í Ungverjalandi og Slóvakíu um að leyfa flutning á rússneskri olíu um Adria-olíudreifikerfið sem liggur í gegnum Króatíu. Ungverjar og Slóvakar eru einu ESB-þjóðirnar sem kaupa hráolíu af Rússum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Nígería 100 banda­rísk­ir her­menn á leið til Ní­ger­íu Brynja Dögg Friðriksdóttir Nígerískir hermenn. EPA Nígeríska varnamálaráðuneytið tilkynnti í gær að um 100 bandarískir hermenn séu á leið til landsins. Bandarísku hermennirnir eru sérsveitarmenn sem munu einungis koma að ráðgjöf og þjálfun fyrir nígeríska herinn. Samkvæmt nígerískum yfirvöldum munu þeir ekki taka beinan þátt í aðgerðum með nígeríska hernum í aðgerðum hersins gegn vígahópum og íslamistum í landinu. Nígería hefur verið undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn vegna óstöðugleika í landinu og óskaði nígeríska ríkisstjórnin eftir aðstoð frá Bandaríkjaher til að þjálfa herinn. Árásir á almenna borgara og mannrán eru tíð í Nígeríu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tveir drepn­ir og þrír særðir í skot­árás í Pawtuck­et Að minnsta kosti tveir voru drepnir og þrír eru alvarlega særðir eftir skotárás á íshokkíleik í skautahöll í Pawtucket í Bandaríkjunum í kvöld. Svo virðist sem skotárásin hafi ekki verið handahófskennd þar sem hún beindist að sömu fjölskyldunni. 16. febrúar 2026 kl. 23:05INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál „Mik­il­vægt að stjórn­völd út­skýri það mjög vel hvern­ig þessu mun vinda fram“ Tenging almannatrygginga við launavísitölu var til umræðu í Silfrinu. Forstjóri Festi, segir mikilvægt að stjórnvöld útskýri mjög vel hvernig tengingin muni virka. 16. febrúar 2026 kl. 21:44INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Segir halla­laus fjár­lög árið 2027 enn raun­hæf Fjármála- og efnahagsráðherra segir ríkisstjórnina stefna að „betri hagvexti“. Hann bendir á að meiri hagvexti sé spáð á þessu ári en því síðasta þrátt fyrir að dregið hafi úr fólksfjölgun hérlendis. 16. febrúar 2026 kl. 21:40INNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Bollu­dag­ur­inn hald­inn há­tíð­leg­ur Bolludagurinn var haldinn hátíðlegur í dag. Boðið var upp á alls konar bollur, vatnsdeigsbollur eða gerbollur með sultu, súkkulaði, karamellu, búðingi og rjóma, svo nokkuð sé nefnt. 16. febrúar 2026 kl. 21:02INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Kjara­gliðn­un út­skýrð á manna­máli Ríkisstjórnin ætlar að tengja almannatryggingar við launavísitölu til að koma í veg fyrir kjaragliðnun. Þetta kann að hljóma leiðinlegt og flókið en Kastljós útskýrir málið. 16. febrúar 2026 kl. 20:55INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Rík­is­end­ur­skoð­un ít­rek­ar þriggja til fjög­urra ára gamlar ábend­ing­ar Ríkisendurskoðun kynnti í dag fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis niðurstöður eftirfylgni með þremur stjórnsýsluúttektum. Aðeins hefur verið komið til móts við 5 af 23 ábendingum og tillögum í úttektunum. 16. febrúar 2026 kl. 20:00MENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Minn­is­blöð veiði­manns: „Ótrú­lega fersk og gef­andi bók“ Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir Víðsjár á Rás 1, rýnir í Minnisblöð veiðimanns eftir Túrgenev. „Það er fengur, eins og oft er sagt og samt ekki nógu oft, að þessari nýju þýðingu á tímamótaverki Túrgenevs.“ 16. febrúar 2026 kl. 19:19ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Sí­fellt fleiri lík finn­ast í fjölda­gröf­um á Gaza Enn bíða þúsundir á Gaza sem þurfa læknismeðferð annars staðar, þótt búið sé að opna landamærin við Egyptaland. Þótt vopnahlé hafi staðið í fjóra mánuði heldur Ísraelsher áfram árásum. 16. febrúar 2026 kl. 18:38MENNING OG DÆGURMÁL Andlát Robert Duvall fall­inn frá Robert Duvall lék meðal annars í The Go

Share this article