- What: The Reykjavík swimming hall is closed due to a failure in water pressure.
- Impact: The swimming hall is closed to the public, and it is unclear when it will reopen.
Lokað er í sundhöll Reykjavíkur vegna bilunar á vatnsþrýstingi. Bilunin veldur því að ekkert vatn er í sturtum og vöskum sundhallarinnar. Snorri Örn Arnaldsson, forstöðumaður Sundhallar Reykjavíkur, segir ekki útlit fyrir að sundlaugin verði opnuð aftur í dag. Snorri segir enn óljóst samspil hvaða þátta valdi bilun á vatnsþrýstingnum, píparar vinni nú að viðhaldsvinnu og telur hann að hægt verði að opna laugina aftur í fyrramálið. Innilaug Sundhallar Reykjavíkur.Ljósmynd / Reykjavíkurborg