Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Mbl Innlent

Alvarlegar afleiðingar fyrir Vesturland

  • What: Concerns raised about a budget proposal affecting West Iceland
  • Impact: Potential impact on local businesses and communities
Read Full Article →

200 mílur | mbl | 30.3.2026 | 20:45 | Uppfært 21:58 Alvarlegar afleiðingar fyrir Vesturland Í ályktun bæjarstjórnar Stykkishólms er frumvarp innviðaráðherra um afnám línuívilnunar og skel- og rækjubóta eins og „blaut tuska í andlitið“. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Bæjarstjórn og bæjarráð Stykkishólms, ásamt Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), lýsa yfir þungum áhyggjum af frumvarpi innviðaráðherra sem felur í sér að fella niður línuívilnun og skel- og rækjubætur. Samhljóða afstaða þeirra er að frumvarpið geti haft víðtæk og alvarleg áhrif á atvinnulíf og byggðafestu á Vesturlandi. Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólms 26. mars var málið tekið til umræðu þar sem lögð var fram ályktun bæjarráðs frá 19. mars auk ályktunar SSV frá 18. mars. Í bókun bæjarstjórnar segir meðal annars að lýst sé yfir „þungum áhyggjum af fyrirliggjandi frumvarpi innviðaráðherra“ og varað við afleiðingum þess fyrir sveitarfélagið. Frétt af mbl.is Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Bæjarráð hafði áður tekið skýra afstöðu gegn frumvarpinu og komið því á framfæri að lagst væri „eindregið og hart gegn fyrirliggjandi frumvarpi innviðaráðherra“. Þar var jafnframt varað við því að lagabreytingarnar geti haft verulega neikvæð áhrif á atvinnulíf, byggðafestu og tekjustofna sveitarfélagsins. Eins og blaut tuska Í ályktun bæjarstjórnar kemur fram að áhrifin gætu orðið víðtæk í samfélaginu. „Bæjarstjórn bendir á að gróft á litið sé um að ræða hátt í 100 störf sem eiga hér beint og óbeint undir þeirri starfsemi sem reiðir sig á skelbætur. Þannig má ætla að áhrifin nái til um 200 einstaklinga í sveitarfélaginu, þar af fjölda barna, eða um 15% íbúa sveitarfélagsins.“ Bæjarstjórn leggur áherslu á að sjávarútvegur sé undirstaða atvinnulífs í Stykkishólmi og að skelbætur séu einn lykilþáttur í rekstrargrundvelli fyrirtækja í greininni. „Áformin eru þannig til þess fallin að veikja rekstrargrundvöll sveitarfélagsins og þar með samfélagsins í heild,“ segir jafnframt í ályktuninni. Einnig er gagnrýnt að samráð hafi skort, þrátt fyrir ítrekaðar óskir sveitarfélagsins þar að lútandi. Þá er bent á að frumvarpið komi fram eftir að skelbætur hafi þegar verið skertar. Bæjarstjórn hafi gert ítrekaðar tilraunir til að fá skerðinguna dregna til baka. „Í stað þess að leiðrétta þá skerðingu er þvert á móti lagt til að afnema skelbætur. Er framkomið frumvarp því eins og blaut tuska í andlitið á samfélaginu hér í Stykkishólmi,“ segir í ályktuninni. Bæði bæjarráð og bæjarstjórn benda á að neikvæð áhrif séu þegar farin að gera vart við sig. Meðal annars er vísað til þess að flutningsfyrirtækið BB og synir ehf. hafi dregið til baka lóðarumsókn og uppbyggingaráform vegna óvissu sem skapast hefur í kjölfar frumvarpsins. Frétt af mbl.is Hætta við stækkun vegna frumvarps Skora á ríkisstjórn að stíga til baka Afstaða bæjarráðs og bæjarstjórnar Stykkishólms er í samræmi við ályktun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Í yfirlýsingu samtakanna frá 18. mars lýsir stjórn þeirra yfir þungum áhyggjum af frumvarpi innviðaráðherra. „Á haustþingi SSV 2025 var samþykkt ályktun, þar sem skorað var á stjórnvöld að tryggja að breytingar á lögum um stjórn fiskveiða grafi ekki undan samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra útgerða og að línuívilnun og skel- og rækjubætur verði hvorki skertar né lagðar af,“ segir í ályktun SVS. „Nú liggur fyrir frumvarp sem gengur þvert gegn þeirri ályktun sem samþykkt var samhljóða af sveitarfélögum á Vesturlandi og hefur verið kynnt þingmönnum Norðvesturkjördæmis. Þá fara áformin þvert gegn því sem sveitarfélög á Vesturlandi lögðu áherslu á á fundi sveitarfélaganna með ríkisstjórn Íslands í Stykkishólmi í ágúst 2025.“ Frétt af mbl.is Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Samtökin hafna því mati að áhrifin á sveitarfélög séu lítil og segja að afnám ívilnana muni hafa veruleg neikvæð áhrif á atvinnulíf, byggðafestu og tekjustofna sveitarfélaga. Áhrifanna muni ekki síst gæta á Snæfellsnesi, þar sem vægi sjávarútvegstengdra fyrirtækja í atvinnulífinu sé sérstaklega mikið. Í öllum ályktununum er skorað á ríkisstjórn og Alþingi að falla frá frumvarpinu og hefja samráð við sveitarfélög og atvinnulíf. Sérstök áhersla er lögð á að tryggja stöðugleika og fyrirsjáanleika í sjávarútvegi og vernda byggðafestu í sjávarbyggðum. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Skítaveður allan túrinn“ Slippurinn Akureyri fékk vottun endurnýjaða ESB veit að þetta er risamál fyrir Ísland Vill samvinnu í stað skattlagningar Alvarleg áhrif fyrir Vesturland Beint: Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Slæmar gæftir en verð óvenjuhátt Eikarbátur laskaðist í vitlausu veðri Fór sína síðustu veiðiferð fyrir Vísi 1.229 tonn af veiðarfærum endurunnin ESB veit að þetta er risamál fyrir Ísland Vill samvinnu í stað skattlagningar Beint: Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Slæmar gæftir en verð óvenjuhátt Fór sína síðustu veiðiferð fyrir Vísi Eikarbátur laskaðist í vitlausu veðri 1.229 tonn af veiðarfærum endurunnin Bára Eyfjörð nýr fjármálastjóri Samherja hf. Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Helgafellið enn í viðgerð: Bilun í aðalvél „Kommissarinn“ íslenskur Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Bára Eyfjörð nýr fjármálastjóri Samherja hf. ESB veit að þetta er risamál fyrir Ísland Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Fór sína síðustu veiðiferð fyrir Vísi Eikarbátur laskaðist í vitlausu veðri Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð Helgafellið enn í viðgerð: Bilun í aðalvél Vill samvinnu í stað skattlagningar Fleira áhugavert Viðsnúningur í rekstri hjá RÚV Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Fá ekki leyfi til að rífa braggann „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 30.3.26 689,21 kr/kg Þorskur, slægður 30.3.26 851,30 kr/kg Ýsa, óslægð 30.3.26 577,18 kr/kg Ýsa, slægð 30.3.26 578,74 kr/kg Ufsi, óslægður 30.3.26 376,37 kr/kg Ufsi, slægður 30.3.26 460,42 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 30.3.26 404,47 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 25.3.26 295,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 30.3.26 Einar Guðnason ÍS 303 Lína Steinbítur 6.217 kg Þorskur 2.128 kg Ýsa 142 kg Skarkoli 71 kg Samtals 8.558 kg 30.3.26 Björg EA 7 Botnvarpa Karfi 21.379 kg Samtals 21.379 kg 30.3.26 Ásdís ÍS 2 Dragnót Skarkoli 2.425 kg Steinbítur 635 kg Þorskur 526 kg Ýsa 70 kg Sandkoli 46 kg Grásleppa 38 kg Þykkvalúra 6 kg Samtals 3.746 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni „Skítaveður allan túrinn“ Slippurinn Akureyri fékk vottun endurnýjaða ESB veit að þetta er risamál fyrir Ísland Vill samvinnu í stað skattlagningar Alvarleg áhrif fyrir Vesturland Beint: Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Slæmar gæftir en verð óvenjuhátt Eikarbátur laskaðist í vitlausu veðri Fór sína síðustu veiðiferð fyrir Vísi 1.229 tonn af veiðarfærum endurunnin ESB veit að þetta er risamál fyrir Ísland Vill samvinnu í stað skattlagningar Beint: Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Slæmar gæftir en verð óvenjuhátt Fór sína síðustu veiðiferð fyrir Vísi Eikarbátur laskaðist í vitlausu veðri 1.229 tonn af veiðarfærum endurunnin Bára Eyfjörð nýr fjármálastjóri Samherja hf. Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Helgafellið enn í viðgerð: Bilun í aðalvél „Kommissarinn“ íslenskur Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Bára Eyfjörð nýr fjármálastjóri Samherja hf. ESB veit að þetta er risamál fyrir Ísland Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Fór sína síðustu veiðiferð fyrir Vísi Eikarbátur laskaðist í vitlausu veðri Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð Helgafellið enn í viðgerð: Bilun í aðalvél Vill samvinnu í stað skattlagningar Fleira áhugavert Segja fyrirsætuskrifstofur hafa unnið með Epstein „Skynja rosalega mikla reiði“ „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Um 3.500 bandarískir hermenn komnir á svæðið Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 30.3.26 689,21 kr/kg Þorskur, slægður 30.3.26 851,30 kr/kg Ýsa, óslægð 30.3.26 577,18 kr/kg Ýsa, slægð 30.3.26 578,74 kr/kg Ufsi, óslægður 30.3.26 376,37 kr/kg Ufsi, slægður 30.3.26 460,42 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 30.3.26 404,47 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 25.3.26 295,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 30.3.26 Einar Guðnason ÍS 303 Lína Steinbítur 6.217 kg Þorskur 2.128 kg Ýsa 142 kg Skarkoli 71 kg Samtals 8.558 kg 30.3.26 Björg EA 7 Botnvarpa Karfi 21.379 kg Samtals 21.379 kg 30.3.26 Ásdís ÍS 2 Dragnót Skarkoli 2.425 kg Steinbítur 635 kg Þorskur 526 kg Ýsa 70 kg Sandkoli 46 kg Grásleppa 38 kg Þykkvalúra 6 kg Samtals 3.746 kg Skoða allar landanir »

Share this article