- What: A man in Iceland was sentenced to nine years in prison for repeated sexual assault of a woman with a disability.
- Impact: The man exploited the woman's disability and position as his subordinate in a store.
Karlmaður á sextugsaldri var í gær dæmdur til níu ára fangavistar í Landsrétti fyrir að nauðga ítrekað konu með þroskahömlun á árunum 2016 til 2020. Konan var undirmaður mannsins í verslun þar sem bæði störfuðu um nokkurra ára skeið. Hún hafi ekki getað spornað við verknaðinum vegna fötlunar sinnar og aðstöðumunar, að því er segir í dómnum og það hafi maðurinn nýtt sér. Hann kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir að konan stríddi við þroskahömlun og að gagnkvæm hrifning hafi verið milli þeirra. Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að þvinga konuna til hafa samræði og önnur kynferðismök við aðra karlmenn sem hann átti í samskiptum við á stefnumótasíðu. Enginn þeirra var ákærður í málinu. Maðurinn bar fyrir sig að konan hefði verið samþykk öllum þeim kynferðislegu samskiptum en dómskvaddur matsmaður sem mat þroska hennar og andlega heilsu sagði hana eiga erfitt með að setja mörk og áttaði sig ekki á þeim bjargráðum sem fólk hefði almennt í samböndum. Brot gegn syni konunnar og kærustu hans Hinn dæmdi neyddi einnig son konunnar til að fylgjast með kynferðisathöfnum þeirra, að sögn til að kenna honum að stunda kynlíf, ásamt því sem hann særði blygðunarkennd sonarins og kærustu hans með því að hafa bein afskipti af kynlífi þeirra. Það teljist kynferðisleg áreitni, athæfið hafi verið mjög meiðandi og ótvírætt orðið til þess að valda báðum ótta, samkvæmt ákvæðum hegningarlaga. Maðurinn þvertók fyrir að atvik hefðu verið með þeim hætti sem lýst er í dómnum. Manninum var gert að greiða þolendunum þremur miskabætur, samtals 6,7 milljónir króna með vöxtum og dráttarvöxtum líkt og ákveðið var í héraði. Maðurinn hafði hlotið átta ára fangelsisdóm í héraði sem hann áfrýjaði sjálfur og krafðist sýknu eða að refsing hans yrði milduð verulega ásamt niðurfellingu eða lækkun miskabótakröfunnar.