Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Það þarf að hugsa í fleiri lausnum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.2.2026 | 7:30 Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Anton Brink „Ég deili þessum áhyggjum með Samtökum iðnaðarins (SI) því það hefur ekki verið byggt eftir því sem markaðurinn kallar eftir, sem eru minni, hagkvæmari og ódýrari íbúðir, auk þess sem háir vextir og verðbólga hafa ekki hjálpað til við hreyfingu á fasteignamarkaði.“ Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í framhaldi af ummælum Sigurðar Hannessonar framkvæmdastjóra SI um niðurstöðu könnunar sem bendir til þess að hægja muni á nýbyggingu íbúða á næstu tveimur árum. „Það er mjög mikilvægt að taka þessa stöðu alvarlega því það versta í stöðunni núna er að missa byggingargeirann í einhvers konar frost eins og gerðist hér á árunum eftir hrun, því það tekur langan tíma að vinna upp slíka stöðu þegar verktakar fara að draga saman seglin. Til að draga úr þessu erum við að bregðast við með margvíslegum aðgerðum.“ Hann segir að á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar hafi verið farið í aðgerðir sem snúi fyrst og fremst að tekjulágum og fyrstu kaupendum. „Við erum búin að breyta hlutdeildarlánakerfinu þar sem okkur er gert kleift að ganga til samninga við verktaka um að byggja inn í kerfið, sem var alltaf markmið með kerfinu á sínum tíma þannig að það yrði meira framboðsdrifið úrræði en ekki bara til að svara eftirspurninni.“ Fyrst og fremst lóðaskortur Spurður hvað hlutdeildarlánakerfið kosti ríkissjóð á þessu ári segir Ragnar að gert sé ráð fyrir 5,5 milljörðum í þann málaflokk á árinu. „Ég býst við því að þeir fjármunir muni ganga út og nú liggur fyrir þinginu frumvarp um aukningu stofnframlaga því þær lóðir sem hafa verið í boði hafa verið dýrar og við gerum ráð fyrir því að þessi aukning hjálpi félögum sem byggja inn í almenna íbúðakerfið að halda áfram. Það hefur fyrst og fremst verið lóðaskortur sem hefur hamlað uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu og við erum að reyna að takast á við þann vanda líka.“ Margt í pípunum Ragnar leggur áherslu á að ný hverfi þurfi að vera í uppbyggingu á hverjum tíma til þess að halda jafnvægi á byggingarmarkaði og að það þurfi að miða uppbygginguna við eftirspurnina sem er eftir minna og hagkvæmara húsnæði. „Það eru viðræður í gangi milli ríkis og sveitarfélaga, bæði sem snýr að innviðakostnaði, sem hefur verið flöskuháls fyrir sveitarfélögin til að ráðast í ný hverfi, og hvernig við getum liðkað til fyrir hraðari uppbyggingu nýrra hverfa. Það er klárlega eftirspurn til staðar en kannski ekki eftir þeim íbúðum sem eru í boði og að því þarf að gæta við gerð skipulagsins.“ Hann segir að ríkið geti komið til móts við sveitarfélögin um innviðauppbyggingu samhliða uppbyggingu nýrra hverfa og margt sé í pípunum. 1.300 íbúðir hjá Blæ og Bjargi Í ræðu sinni á málþingi VR og SI greindi Ragnar frá því að íbúðafélögin Bjarg og Blær hefðu þegar byggt 1.300 leiguíbúðir. Spurður að því hvort til standi að fara í slíkt átak á séreignaríbúðum segir hann að slíkt fyrirkomulag sé í skoðun. „Við þurfum að hugsa í fleiri lausnum þar sem þarfir fólks eru mjög mismunandi. Við þurfum fleiri minni íbúðir og hagkvæmara húsnæði sem er byggt í úthverfum, en ekki á dýrum þéttingarreitum þótt ég sé persónulega ekki á móti þéttingunni.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Dæmdur fyrir að skilja kærustuna eftir Þrír búðarhnuplarar handteknir Húsleit lögreglu heldur áfram í Royal Lodge „Ég held að það hafi kannski verið komin þreyta í mig“ Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Húsleit lögreglu heldur áfram í Royal Lodge „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf „Einstaklega ánægjulegt í undarlegum aðstæðum“ Myndi virkja um 200 metra fall Slökkviliðið brást við efnaleka í HR Nýtt met í Hvalfjarðargöngum Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ ETS-kerfið skekkir samkeppnisstöðu Tveggja tíma seinkun á leið Strætó til Akureyrar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Dæmdur fyrir að skilja kærustuna eftir Þrír búðarhnuplarar handteknir Húsleit lögreglu heldur áfram í Royal Lodge „Ég held að það hafi kannski verið komin þreyta í mig“ Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Pútín, konur og greiðar: Rússatengsl Epsteins Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf „Einstaklega ánægjulegt í undarlegum aðstæðum“ Myndi virkja um 200 metra fall Slökkviliðið brást við efnaleka í HR Nýtt met í Hvalfjarðargöngum Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ ETS-kerfið skekkir samkeppnisstöðu Tveggja tíma seinkun á leið Strætó til Akureyrar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article