EPA / JOHN G. MABANGLO Olíuverð náði seint í gær sínu hæsta verði í sex mánuði vegna óvissu um samninga milli Bandaríkjanna og Íran. Verð á Brent hráolíu fór í ríflega 72 dollara á tunnuna. Greinendur segja að erfiðara sé að finna leið til að slá á spennuna milli ríkjanna þegar það virðist sífellt ólíklegra að samningar náist. Þá sé bandaríski herinn að flytja hergögn til Miðausturlanda. Þetta veki svo aftur óvissu um birgðastöðu olíu til framtíðar. Trump gaf seint í gærkvöld Íran 10 daga til að ná samkomulagi um kjarnorkuvopn, annars myndi eitthvað slæmt gerast.