Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sveitarstjórnarfulltrúum ekki fækkað þrátt fyrir íbúafækkun

  • What: An article discusses the upcoming local elections in Grindavík, Iceland, and the arrangements made for residents displaced by recent natural disasters to participate in the voting process.
  • Impact: The article informs about the continuation of the same number of local government representatives despite the population decrease due to the natural disasters.
Read Full Article →

Ekki stendur til að fækka sveitarstjórnarmönnum í Grindavík þrátt fyrir að miklu færri búi í bænum vegna náttúruhamfaranna sem dunið hafa á Grindvíkingum. Bæjarstjóri segir ánægju ríkja meðal íbúa með nýtt kosningafyrirkomulag sem samþykkt var á Alþingi í gær. Kjörstjórn tilbúin Nýtt bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar gefur Grindvíkingum, sem voru með lögheimili í Grindavík fyrir rýmingu 10. nóvember 2023, val um að að kjósa í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem þeir eru með lögheimili í dag. Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir íbúa ánægða með fyrirkomulagið. Kosningarnar hafi verið í undirbúningi undanfarna mánuði, í samráði við stjórnvöld. „Kjörstjórnin okkar er alveg tilbúin til að takast á við þessar kosningar eins og allar aðrar. Eina sem breytist er að það bætist á listann sá hópur sem óskar eftir því að fá að kjósa í Grindavík. En að öðru leyti verða kosningarnar með svipuðu sniði og verið hefur.“ Sveitarstjórnarfulltrúum ekki fækkað Fannar segir að nú taki við hefðbundinn undirbúningur líkt og áður. Breytingar á kosningafyrirkomulaginu verði kynntar á næstunni. „En umsóknir skulu berast til Þjóðskrár ekki seinna en 45 dögum fyrir kjördag. Þannig að fólk þarf að hafa svolítinn fyrirvara á því að færa kosningaréttinn sinn. Að öðru leyti eru þetta bara venjulegar kosningar.“ Fyrir rýmingu 2023 voru vel á fjórða þúsund með lögheimili í bænum. Nú eru þeir tæplega 900. Fannar segir að þrátt fyrir það verði sveitarstjórnarfulltrúum ekki fækkað. „Þetta fór nú í umræðu hjá okkur í vetur, en það verður bara mjög stórt verkefni fram undan hjá nýrri bæjarstjórn að vinna ötullega að endurreisn samfélagsins í Grindavík. Og það var ekki talin ástæða til að fækka þeim fjölda sem núna er í bæjarstjórninni - enda gerum við ráð fyrir því líka að smám saman fjölgi íbúum bæjarins og verkefnin eru ærin fram undan.“

Share this article