200 mílur | mbl | 20.2.2026 | 14:30 Höfundur Íslenskra fiska jarðsunginn Jónbjörn í haustralli Hafrannsóknastofnunar árið 2015. Við hlið Jónbjörns er samstarfsfélagi hans, Sigfús Jóhannesson. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun Í dag var Jónbjörn Pálsson fiskifræðingur jarðsunginn í Kópavogskirkju. Hafrannsóknastofnun minnist þessa merka vísindamanns í kveðjuorðum á heimasíðu stofnunarinnar . Jónbjörn var fæddur árið 1949 en hann lauk BS-prófi í líffræði við Háskóla Íslands árið 1973. Þá lauk hann MS-prófum frá University of Southern Mississippi árið 1979 og University of Guelph, Ontario árið 1982. Jónbjörn starfaði hjá Hafrannsóknastofnun frá árinu 1983 þegar hann varð útibússtjóri stofnunarinnar á Húsavík. Þar starfaði hann í átta ár en árið 1991 flutti hann sig um set og hóf störf hjá stofnuninni í Reykjavík. Jónbjörn vann sleitulaust hjá stofnuninni þar til árið 2019 þegar hann lét af störfum sökum aldurs. Íslenskir fiskar mikilvæg heimild Þekktasta höfundarverk Jónbjörns er án efa bókin Íslenskir fiskar sem kom út árið 2013 og er til á mörgum heimilum. Þá bók skrifaði Jónbjörn ásamt Gunnari Jónssyni fiskifræðingi. Bókin er einstakur fróðleiksbrunnur og er enn þá ein yfirgripsmesta og handhægasta heimild sem við höfum um íslenskar fisktegundir. Í mörgum færslum á vef Hafrannsóknastofnunar um sjávardýr er enn þá vitnað til þeirrar bókar. Einnig var Jónbjörn ötull ljósmyndari og skildi eftir sig margar ljósmyndir af sjávarlífverum. Jónbjörn var ekki aðeins virkur í fræðasamfélaginu, heldur var hann í góðum samskiptum við útveg og sjómenn sem færðu honum reglulega áhugaverða fiska til athugunar. Margir muna eflaust eftir einstaklega áhugaverðum pistlum sem Jónbjörn skrifaði árlega í sjávarútvegsblaðið Ægi þar sem hann tók saman sjaldséða fiska sem veiðst höfðu við Ísland það árið. Jónbjörn átti veg og vanda að fiskisýningunni þekktu sem stillt er upp á Sjómannadag ár hvert, ásamt Gunnari Jónssyni fiskifræðingi og meðhöfundi Jónbjörns að bókinni Íslenskir fiskar. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun Þá viðhafði Jónbjörn virka fræðslumiðlun til almennings, en auk útgáfu íslenskra fiska höfðu Jónbjörn og Gunnar Jónsson frumkvæði að því að halda fiskasýningu á sjómannadag. Sú sýning, sem Hafrannsóknastofnun leggur til dagsins ár hvert, er fyrir löngu orðin að föstum lið í hátíðarhöldunum. Í minningarorðum Hafrannsóknastofnunar er ennfremur rifjað upp að meðal síðustu verka Jónbjörns hafi verið að greina nýja fisktegund í íslenskri lögsögu en það var árið 2017. Þá fann Jónbjörn Brisling, nýjan landnema við okkar strendur, og leiddi hann greinarskrif um tegundina. Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Vonast eftir stærri loðnukvóta á næsta ári Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Ásökun um vanhæfi Radarinn fer aftur í loftið Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Haag-ákvæði þarf samþykki Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Ásökun um vanhæfi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Segir orð Bergþórs valda misskilningi Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Haag-ákvæði þarf samþykki Vonast eftir stærri loðnukvóta á næsta ári Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Línuskip Vísis landa góðum afla Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Ásökun um vanhæfi Engin aukning í loðnukvóta Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ „Góða loðnuvertíðin“ Fleira áhugavert „Það var bara allt á floti“ Andrew laus en enn til rannsóknar Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Fannst örendur í fangelsinu Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Segir orð Bergþórs valda misskilningi Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Vonast eftir stærri loðnukvóta á næsta ári Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Ásökun um vanhæfi Radarinn fer aftur í loftið Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Haag-ákvæði þarf samþykki Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Ásökun um vanhæfi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Segir orð Bergþórs valda misskilningi Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Haag-ákvæði þarf samþykki Vonast eftir stærri loðnukvóta á næsta ári Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Línuskip Vísis landa góðum afla Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Ásökun um vanhæfi Engin aukning í loðnukvóta Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ „Góða loðnuvertíðin“ Fleira áhugavert Svartsýni í könnun SI um markaðinn Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Fannst örendur í fangelsinu Framleiðslan sögð hefjast fyrr en áætlað var Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »