Innlent | Morgunblaðið | 22.2.2026 | 9:00 Bjarnhéðinn er á leið á Landsbókasafnið Frumherjinn Bjarnhéðinn Jónsson hér á lágmynd í fangi Halldórs Lárussonar stjórnarformanns Héðins. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Lágmynd af Bjarnhéðni Jónssyni járnsmið, þeim er járnsmiðjan Héðinn hf. er nefnd eftir, var á dögunum dregin fram úr hirslum þar á bæ og verður á næstunni færð Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Tilefnið er ærið og sagan er löng. „Hér á bæ höldum við í hefðir og sögu. Málmur og menning geta svo sannarlega tengst með ýmsu móti,“ segir Halldór Lárusson, stjórnarformaður Héðins hf. Nefnt eftir brautryðjanda Héðinn hf. er fyrirtæki stofnað árið 1922 – fyrir 104 árum – af þeim Markúsi Ívarssyni (1884-1943) og Bjarna Þorsteinssyni (1897-1938) sem þá keyptu járnsmíðaverkstæði við Aðalstræti í Reykjavík sem Bjarnhéðinn Jónsson átti og rak, en hann lést árið 1920. Þeir félagar færðu út kvíarnar og nefndu smiðjuna eftir brautryðjandanum; Héðinn skyldi hún heita. Haldið var upp á 100 ára afmæli Héðins haustið 2022 með sýningu á málverkum sem Markús Ívarsson safnaði á sinni tíð. Þau voru, nokkru eftir að Markús féll frá, gefin Listasafni Íslands og mynda mikilvægan stofn þess. Af Bjarnhéðni er þá sögu að segja að hann var mikill bókamaður og -safnari og átti stórt safn rímna, prentaðra og óprentaðra. Einnig riddarasögur og síðari tíma fornaldarsögur, sumar skrifaðar með hans hendi. Tveimur árum eftir andlát Bjarnhéðins, árið 1922, eignaðist Landsbókasafnið níu handrit úr dánarbúi hans. Það var svo 78 árum seinna, á þúsaldamótum árið 2000, að handritadeild safnsins bárust tíu handrit úr safni Bjarnhéðins frá Blindravinafélaginu. Þaðan höfðu þau borist frá hjónunum Tómasi Jónssyni pípulagningameistara (1910-1996) og Fríðu (1908-1994) sem var dóttir Bjarnhéðins og Guðrúnar Jónsdóttur konu hans. Fríða og Tómas voru barnlaus og höfðu arfleitt Blindravinafélagið að eigum sínum. Þá má geta þess að prentaðar bækur úr safni Bjarnhéðins mynduðu frumstofninn í Borgarbókasafni Reykjavíkur. Merkur bókakostur Bjarnhéðins hér kominn í Þjóðarbókhlöðuna. Ljósmynd/Landsbókasafn Rímur og riddarasögur Nú, í byrjun líðandi árs, bárust til Landsbókasafns 94 handrit úr fórum Bjarnhéðins sem áður höfðu verið í eigu Fríðu sem nefnd er hér að framan. Í þessum kosti eru rímur, riddarasögur og síðari tíma fornaldarsögur, flest handritin skrifuð á tímabilinu 1870-1910 eða þar um bil, en einnig nokkur eldri. Sjaldgæft er að jafn mörg handrit berist safninu á einu bretti; stundum eru þau kannski þrjú á ári en þarna komu 94 á einu bretti. Sending þessi verður nú skráð á handrit.is svo kunnugir geti kynnt sér hvað sé í pökkum. „Bjarnhéðinn var í bókunum en Markús, langafi minn, var maður málverkalistar. Þetta skapar skemmtilegan þráð menningarsögu. Járniðnaður, eins og við hjá Héðni stundum, getur á sinn hátt verið list og menningarstarf þegar vel er staðið að verkum og ekkert gefið eftir í vandvirkni,“ segir Halldór Lárusson. Þegar skilaboð bárust frá Landsbókasafninu um nýlega fengna handritagjöf fór Halldór að skoða í skápana í smiðju Héðins í Hafnarfirði og dró þá fram lágmynd af Bjarnhéðni, öndvegisgrip sem Ríkarður Jónsson myndskeri útbjó árið 1964, þá væntanlega eftir ljósmyndum. „Ég hef verið viðloða hér í Héðni í áratugi og hef alltaf vitað af lágmyndinni af Bjarnhéðni. Myndin verður nú færð Landsbókasafninu og á best heima þar; svo merk er saga þessa manns sem fyrirtækið er nefnt eftir,“ segir Halldór. Landið og miðin Héðinn er stórt fyrirtæki með höfuðstöðvar við Gjáhellu í Hafnarfirði. Kjarnastarfsemin er járn- og stálsmíði í fjölbreyttustu mynd en hönnunar- og raftæknivinna er æ stærri hluti starfseminnar. Verkefnin eru m.a. fjölbreytt þjónusta við sjávarútveg, svo sem fiskimjölsiðnaðinn og útgerð, stóriðjufyrirtæki og orkuframleiðsluna. Hjá fyrirtækinu starfa alls um 150 manns. Í dagsins önn er um helmingur þeirra á verkstæðinu en aðrir við störf á vettvangi og þá eru undir bæði landið og miðin. Patrik Ás Reynisson við störf og keðjurnar eru sterkar. mbl.is/Sigurður Bogi Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Læknirinn sagði nei þegar hún tilkynnti óléttuna Bjarnhéðinn er á leið á Landsbókasafnið Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Svuntan á og kaffið í gang: Svona byrjar góður konudagur Upplifði mjög erfiða tíma í Þýskalandi Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tengsl blárra augna við sifjaspell Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Bollur Aðalheiðar slá í gegn í Noregi Sendi Trump 9 milljarða dala reikning Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Tengsl blárra augna við sifjaspell Gengur morðingi laus? Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Fær 1,5 milljónir í vasann Gul viðvörun í gildi til hádegis „Flestir komu inn á síðustu dögum“ Nærri 300 umsagnir um breytingar á útlendingalögum Tveir sinueldar til viðbótar í nótt Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Forstjórinn með stöðu sakbornings Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Nýjast á mbl.is » Læknirinn sagði nei þegar hún tilkynnti óléttuna Bjarnhéðinn er á leið á Landsbókasafnið Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Svuntan á og kaffið í gang: Svona byrjar góður konudagur Upplifði mjög erfiða tíma í Þýskalandi Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Húsleit lögreglu lokið í Sandringham Trump hækkar tolla Bollur Aðalheiðar slá í gegn í Noregi Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Tengsl blárra augna við sifjaspell Gengur morðingi laus? Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Fær 1,5 milljónir í vasann Gul viðvörun í gildi til hádegis „Flestir komu inn á síðustu dögum“ Nærri 300 umsagnir um breytingar á útlendingalögum Tveir sinueldar til viðbótar í nótt Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Forstjórinn með stöðu sakbornings Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat