Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Biðla til íbúa að fara sparlega með kalda vatnið

  • What: Residents and businesses in Akranes, Iceland are asked to conserve water due to drought and increased demand during the fishing season.
  • Impact: Water supply may be insufficient for residents and businesses if conservation measures are not followed.
Read Full Article →

Veitur biðlar til íbúa og fyrirtækja á Akranesi að huga sérstaklega að notkun kalda vatnsins næstu vikur til að tryggja að nægt vatn sé á meðan loðnuvertíðin stendur yfir. Í tilkynningu frá Veitum segir að um tímabundið ástand sé að ræða en á meðan vertíðin stendur yfir aukist heildarvatnsþörf í bænum verulega. Það sé alla jafna ekki vandamál en nú hafi miklir þurrkar og langvarandi frost haft áhrif á vatnstökusvæði bæjarins. Þar sem úrkoma virðist áfram lítil er biðlað til allra fyrirtækja, stofnana og íbúa að fara sparlega með kalda vatnið næstu vikurnar til að tryggja að nóg sé til fyrir mikilvæga verðmætasköpun á Akranesi og til að öll hús fái þann vatnsþrýsting sem til þarf. Mælt með að láta vatnið ekki renna að óþörfu Drykkjarvatnið megi drekka að vild, nota í matseld og láta renna nóg til að fá það kalt en önnur ráð séu árangursrík ef hjálpast er að. Þau eru til dæmis að láta vatnið ekki renna að óþörfu, sleppa því að láta renna í kalda og heita potta, láta stutta sturtu duga, setja tapa í vaskinn við uppvask, nota fötu, en ekki slöngu og kúst, í glugga- og bílaþvottinn og nota orku- og vatnssparandi þvottakerfi á þvottavélar og uppþvottavélar. Guðlaug verður lokað að beiðni Veitna þar til annað verður tilkynnt og Jaðarsbakkalaug verður lokað í dag.

Share this article