Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hyggjast nota gróður til að draga vatnið ofan í jarðveginn

  • What: Water management project in Grundarfjörður
  • Impact: Local community and environment
Read Full Article →

Grundarfjarðarbær tekur þátt í verkefni sameinuðu þjóðanna Life Icewater sem snýr að því að hjálpa til við innleiðingu vatnaáætlunar Evrópusambandsins. Dagur vatnsins var haldinn hátíðlegur í bænum í gær þar sem fjölbreytt fræðsla var á boðstólnum ásamt skemmtun fyrir börnin. Úrkoma er mikil í Grundarfirði og álag á vatnsveitukerfi verulegt. Hugmyndin er að draga vatnið betur ofan í jarðveginn svo það renni á náttúrulegan hátt neðanjarðar í gegnum bæinn og út í sjó. „Þá getum við farið að meðhöndla skólpið okkar. Það sem átti að gera fyrir nokkrum árum var að byggja upp eina stóra dælustöð hérna úti á nesi, tengja útirásina í það og svo pumpa öllu út á stórstreymi og þetta er aðgerð sem kostar einhverja milljarða og fyrir lítið sveitarfélag eins og Grundarfjörð eru það miklar fjárhæðir,“ segir Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags- og umhverfissviðs hjá Grundarfjarðarbæ. Blágrænar ofanvatnslausnir séu því mun fýsilegri kostur. Eru sérstakar gróðurtegundir sem henta betur en aðrar í þetta? „Í Urriðaholti hefur verið notað mikið af grasi en það þarf yfirleitt að slá það þannig að við vildum ekki fara þá leið. Oft hafa verið notuð tré og runnar. Við viljum nota beðin okkar líka sem snjósöfnunarsvæði en trén og runnarnir eiga það á hættu að brotna þannig að við erum í rauninni bara að þróa nýja leið þar sem við ætlum að nota fjölæringa í beðin,“ segir Nanna.

Share this article