Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Horft til framtíðar í Grundarfirði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.4.2026 | 11:37 Horft til framtíðar í Grundarfirði Gestir á ársfundi Life Icewater fengu kynningu á regnbeðum og fleiru í Grundarfirði. Ljósmynd/Nanna Harðardóttir Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki „Þetta er margþætt verkefni og margir nýstárlegir hlutir sem við erum að takast á við,“ segir Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði. Þar hafa síðustu ár verið tekin áhugaverð skref í fráveitumálum. Áratuga gamalt fráveitukerfi í bænum hefur um þó nokkurt skeið ekki annað því vatnsmagni sem stórir regnviðburðir hafa í för með sér. Mikið regn, snjór og asahláka hefur valdið miklu álagi á kerfið og við erfiðustu aðstæður hefur flætt inn í kjallara og fleira í þeim dúr. Í aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar sem tók gildi árið 2021 var mörkuð sú stefna að í stað þess að fara í umsvifamiklar endurbætur á gamla lagnakerfinu skyldu notaðar blágrænar ofanvatnslausnir til að minnka vatnsmagn í fráveitukerfinu. Einnig stendur sveitarfélagið frammi fyrir kröfum um hreinsun fráveituvatns, eins og mörg önnur sveitarfélög, sem ekki hafa fjárhagslegt bolmagn í slíkar risaframkvæmdir. „Í stað þess að byrja á tengingu útrása og dælustöð, ásamt því að svera upp lagnir í götum, þá ákváðum við að byrja á hinum endanum,“ segir Björg við Morgunblaðið. Hún segir að 80-90% af því sem fari í gegnum holræsakerfið sé vatn af yfirborðinu. Það fari í skolprörin og út í sjó. Ef byggja ætti dælustöð fyrir þetta magn myndi það fela í sér gríðarlegan kostnað. „Ávinningur af því að minnka magn vatns í holræsakerfinu og tækla það með öðrum hætti er gríðarlegur.“ Frá 2020 hefur Grundarfjarðarbær unnið að því að innleiða nýja stefnu í áföngum. Vert er að geta þess að sveitarfélagið er hið fyrsta hér á landi til að setja sér skýra stefnu í aðalskipulagi um innleiðingu blágrænna fráveitulausna við endurnýjun veitukerfis í heilu þéttbýli. Ákveðið var að endurnýja gamla fráveitukerfið smám saman samhliða öðrum framkvæmdum, í götum, gangstéttum og á opnum svæðum. Meðal slíkra lausna er að útbúa viðtaka eða farveg á yfirborðinu og beina regnvatni þangað, t.d. í sérstök regnbeð, sem geta tekið við miklu vatni, og einnig inn á græn svæði sem geta tekið við enn meira vatni o.fl. Með þessu er verið að minnka það magn af vatni sem rennur óheft í skólpkerfið, bæta hreinsun skólps og draga úr hættu á yfirflæði. Auk þess er verið að vinna í haginn til framtíðar, þegar kemur að því að skólpið verði hreinsað áður en það rennur til sjávar. Þá mun skipta miklu máli að magnið í fráveitukerfinu sé viðráðanlegt og framkvæmd við hreinsistöð hagkvæmari, eins og það er orðað á heimasíðu sveitarfélagsins. Sýndu mikla framsýni Björg segir að þetta hafi fleiri kosti í för með sér. „Regnbeðin okkar munu þegar fram líða stundir verða full af heppilegum gróðri sem tekur við vatni. Þetta mun gera bæinn gróðurvænni og gróður lætur fólki líða vel. Í öllu þessu höfum við séð tækifæri til að umbreyta samhliða útliti og umhverfi bæjarins, til að mynda með því að breikka gangstéttir þegar þær eru endurnýjaðar.“ Hún segir að bæjarstjórnir í Grundarfirði hafi sýnt mikla framsýni þegar þessi stefna var sett í aðalskipulag og henni svo fylgt eftir í verki. Stefnan leiddi svo til þess að Grundarfjarðarbær tók þátt í stórri styrkumsókn í Life-áætlunina en kynnt var í lok árs 2024 að Umhverfis- og orkustofnun, ásamt 23 samstarfsaðilum, hefði hlotið 3,5 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu til að vinna að fjölbreyttum verkefnum til að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi. Verkefnið er til sex ára og ber heitið Life Icewater í verkefnagrunni sjóðsins. Hlutur Grundarfjarðarbæjar í styrknum nam um 334 milljónum króna og er ætlaður til að mæta kostnaði við verklegar framkvæmdir sem tengjast fráveitu, með innleiðingu á blágrænum fráveitulausnum í götum, stígum, á opnum svæðum og almenningsrýmum, og með plöntun og gróðursetningu í blágræn beð, auk undirbúnings fram til 2030. „Þetta verkefni veitir okkur dýrmætt tækifæri til að geta unnið í málum sem við hefðum ella ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að gera. Það er líka jákvætt að vera þátttakandi í svona vel mótuðu verkefni á landsvísu. Það gefur kost á því að tengjast mörgum öðrum sem eru að glíma við svipaðar áskoranir og að læra af þeim.“ Fjölmennur ársfundur haldinn Í vikunni var fyrsti ársfundur Life Icewater-verkefnisins haldinn og það í Grundarfirði. Þar komu saman yfir 60 fulltrúar frá öllum þátttakendum í verkefninu og segir Björg að fundurinn hafi verið gagnlegur og góður. „Við þurfum að halda vel á spöðunum. Það er hver með sitt verkefni og svo spilar þetta saman. Fundurinn var lærdómsríkur og vel heppnaður. Við fengum einnig tækifæri til að sýna hvað við höfum verið að gera og hvað er fram undan í okkar verkefni. Svo gat fólk borið saman bækur sínar. Það var mjög ánægjulegt að hitta allt þetta fólk sem við tengjum okkur við og ræða hvernig við getum gert betur í þessum efnum, t.d. miðlað betur upplýsingum um þau verkefni sem við erum að stússast í.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Elísabet sló Íslandsmet og keppir á EM Horft til framtíðar í Grundarfirði Dásamlegt sætkartöflusalat með ostakubb og granatepli Sá stærsti sem enginn vissi af Hann var grátandi í hálfleik Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Agabrot flugstjórans ólíðandi 300 ferðir á spítalann Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Kirkjan verður af háum fjárhæðum Jón komst í gegn en Trump ekki Milljónir gengu út í kvöld Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Akureyringar lagfæra lýsinguna Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað Nýjast á mbl.is » Elísabet sló Íslandsmet og keppir á EM Horft til framtíðar í Grundarfirði Dásamlegt sætkartöflusalat með ostakubb og granatepli Sá stærsti sem enginn vissi af Hann var grátandi í hálfleik Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Olíuverð hríðfellur Jón komst í gegn en Trump ekki Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Kirkjan verður af háum fjárhæðum Jón komst í gegn en Trump ekki Milljónir gengu út í kvöld Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Akureyringar lagfæra lýsinguna Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað

Share this article