- What: A fire alarm in Reykjavík turned out to be a false alarm.
- Impact: The fire department responded to a report of smoke in an apartment building, but it was caused by cooking on a balcony.
Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var nýverið sent í útkall í Æsufelli í Breiðholti. Steinþór Darri Þorsteinsson varðstjóri staðfestir þetta við fréttastofu en segir að aðgerðin geti reynst minni háttar. Tilkynning hafi borist um reyk í íbúðarhúsi í Æsufelli. Slökkvilið sé enn ekki komið á vettvang og umfangið óvíst að svo stöddu. Steinþór segir aðeins eina tilkynningu hafa borist um mögulegan eldsvoða. Uppfært 21:20: Steinþór Darri segir útkallið hafa reynst tilefnislaust. Reykur hafi átt upptök í eldamennsku á svölum. RÚV / Ragnar Visage