- What: A driver was arrested in Reykjavik for repeatedly backing their car into a house.
- Impact: The driver was found to be intoxicated and was detained.
Ökumaður var handtekinn í vesturhluta Reykjavíkur eftir að tilkynnt var að hann hefði ítrekað bakkað bíl sínum á hús. Lögreglubíll í Aðalstræti. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már Eiðsson Hann reyndist í mjög annarlegu ástandi að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og því vistaður í klefa. Lögreglan var kölluð til vegna slagsmála fyrir utan skemmtistað í miðborginni. Þar var einnig maður handtekinn fyrir að brjóta rúðu í bifreið og annar fyrir akstur eftir göngugötu auk þess sem sá reyndist ökuréttindalaus. Mjög ölvaður maður var handtekinn í úthverfi þar sem hann gekk um og skemmdi farartæki.