Næst síðasti keppnisdagur Vetrarólympíuleikanna á Ítalíu er nú runninn upp og þar verður síðasti íslenski keppandinn í sviðsljósinu. Dagur Benediktsson keppir í 50 km skíðagöngu eins og Norðmaðurinn Johannes Hosflot Klæbo sem getur náð fullkomnum árangri á leikunum, vinni hann gullið. Klæbo varð fyrr á leikunum sá sem á flest gull í sögu Vetrarólympíuleikanna þegar hann vann sitt fjórða gull. Þá jafnaði hann met yfir heildargull á bæði Sumar- og Vetrarólympíuleikum er hann náði níu. Hann átti svo eftir að bæta við fimmta gullnu á leikunum með norsku sveitinni í liðaspretti í skíðagöngu. Klæbo er kominn með alls ellefu gullverðlaun og er því sá næstsigursælasti í sögunni ef miðað er við bæði Sumar- og Vetrarólympíuleika. Sundkappinn Michael Phelps haggast ekki í fyrsta sæti með 23 gull. 50 km skíðaganga karla verður í beinni útsendingu á RÚV sem hefst klukkan 9:50. Norskir skíðagöngukappar eru með fyrstu fjögur rásnúmerin en Dagur er með rásnúmer 46 af 65 keppendum. Alls eru tíu gullverðlaun i boði á þessum næst síðasta keppnisdegi. Leikið verður m.a. til úrslita í krullu karla þar sem Bretland og Kanada eigast við.