Normaðurinn Johannes Hosflot Klæbo heldur áfram að eiga sögulega Vetrarólympíuleika. Í dag vann hann sitt fimmta gull á leikunum með norsku sveitinni í liðasprett í skíðagöngu. Á laugardaginn keppir hann í síðustu grein sinni á leikunum, 50 km göngu. Þar hefur Klæbo tækifæri á að ná fullkomnum Ólympíuleikum. Dagur Benediktsson verður á meðal keppenda í göngunni sem hefst klukkan 09:50. Orðinn sá næstsigursælasti í sögunni Klæbo varð fyrr á leikunum sá sem á flest gull í sögu Vetrarólympíuleikanna þegar hann vann sitt fjórða gull. Þá jafnaði hann met yfir heildargull á bæði Sumar- og Vetrarólympíuleikum er hann náði níu. Nú er hann kominn með tíu gull og er því sá næstsigursælasti í sögunni ef miðað er við bæði Sumar- og Vetrarólympíuleika. Sundkappinn Michael Phelps haggast ekki í fyrsta sæti með 23 gull. Getur hann bætt metið? Klæbo er í rauninni í smá smoginni stöðu. Ledecky og Klæbo eru þau einu á listanum sem eru enn að. Klæbo mun líklega keppa á leikunum 2030 og gæti mögulega náð leikunum 2034. Hann keppir vanalega í öllum þeim sex greinum sem í boð eru á hverjum leikum. Ef allt gengur upp hjá honum gæti hann náð í 13 medalíur í viðbót og jafnað met Phelps. Það þyrfti þó allt að ganga upp. Eina leiðin hann fyrir að slá met Phelps er í raun að það yrði bætt við fleiri greinum. Hér birtast úrslitum í medalíugreinum dagsins á leikunum.