Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Klæbo sá sigursælasti í sögu ÓL — „Breytti skíðagöngu til frambúðar“

Read Full Article →

Norski skíðagöngukappinn Johannes Høsflot Klæbo varð í dag sigursælastur í sögu Vetrarólympíuleikanna. Hann vann sín níundu gullverðlaun er Noregur vann í boðgöngu karla. Yfirburðir hins 29 ára Klæbo hafa verið miklir frá hans fimmtu leikum árið 2018. Það sem er merkilegt við hann er líka að hann virðist nær eingöngu sækja í gull. Sérfræðingurinn Gunnar Birgisson fór yfir sögu Klæbo og hvað það er sem gerir hann framúrskarandi. Klæbo fór fram úr löndum sínum Bjørn Dæhlie, Marit Bjørgen og Ole Einar Bjørndalen sem eru öll með átta gull. Hann á þó nokkuð langt í land til að ná metinu yfir alla Ólympíuleika en Michael Phelps er með 23 gull. „Það hafa komið upp margir göngumenn sem hafa sérhæft sig í einhverju ákveðnu, annaðhvort hefðbundnu skauti eða sprettgöngum, sprettgöngum eða lengri vegalengdum. Oft eru æfingar sniðnar eftir því hvað þú ert að leggja áherslu á. Svo ertu með einn mann sem getur gert þetta allt og verið bestur í þessu öllu á sama tíma, það er Klæbo.“ - Gunnar Birgisson. Hversu mörg gull endar hann með? Klæbo á eftir tvær keppnir á mótinu. Það er liðasprettur og 50 km ganga. Norska sveitin er sigurstranglegust í liðasprettinum. Það þykir líklegt að Klæbo taki þátt á Ólympíuleikunum 2030 í frönsku ölpunum. Þá er spurning hvort að hann verði klár í leikana 2034, 37 ára gamall. Ef allt gengur að óskum og hann heldur uppteknum hætti gæti hann endað ferilinn með allt að tuttugu gull. Setti upp plan til að verða sá besti Klæbo þótti ekki meðal þeirra fremstu í æsku en hann vann náið með afa sínum til að komast í þann stað sem hann er á í dag. „Hann var aldrei neins yfirburðar sem barn, en upp úr 16 ára aldri setja hann og afi hans sem hefur verið hans mentor í gegnum ferilinn, Kåre Hosflot Klæbo, upp plan til að verða bestur í heimi. Það sem þeir hafa gert betur en nokkur annar skíðamaður í sögunni er að leggja upp með að sækja sér allar sekúndur í hverri grein sem hægt er að sækja,“ segir Gunnar. Breytti skíðagöngu til frambúðar Þessi kappi hefur í raun breytt tækninni í íþróttinni. Það sést til dæmis á því hvernig hann tæklar brekkur með allt öðrum hætti en aðrir. Það er í raun ekki veikan blett á honum að finna og mistök þekkjast varla. „Klæbo hefur í raun breytt skíðagöngutækninni til frambúðar; hvernig hann leggur upp keppnir taktískt, hvernig hann tæklar öll rennsli og beygjur, hvernig hann forðast alla „pústra“ úti í brautinni og dettur þ.a.l. aldrei hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með.“ Svakalegar fórnir — sér ekki ástvini mánuðum saman Klæbo leggur gríðarlega mikið á sig til að vera fremstur meðal jafningja. Í raun mun meira en eðlilegt getur talist. „Fórnirnar sem hann færir eru af þeim skala að það er árangur eða ekkert. Hann sér fjölskyldu og vini ekki svo mánuðum skiptir fyrir stórmót, er með grímu fyrir munni og nefi í kringum svona stórmót hvert sem hann fer og svo auðvitað þessir þúsund klukkutímar sem hann æfir sem setja hann á alla topplista yfir íþróttafólk heimsins í dag.“ Þá hefur Klæbo farið sínar eigin leiðir í undirbúningi síðustu misseri og er í raun ekki mikið með norska liðinu. „Hefur aðeins slitið sig frá landsliðinu undanfarið og undirbúningur hans og norska liðsins ekki endilega alltaf eins fyrir mót. Æfði mikið í Lavaze fyrir þessa Ólympíuleika sem er svokölluð hæðarþjálfun sem margir í þolíþróttum kannast við.“ Greinarnar sem Klæbo á eftir: Liðasprettur - 18. febrúar - 10:35 - RÚV 50 km karla - 21. febrúar - 09:50 - RÚV (Dagur Benediktsson keppir þar)

Share this article