Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Gæti farið afturábak í mark“ — ótrúlegir yfirburðir Klæbó

Read Full Article →

Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo varð Ólympíumeistari í sprettgöngu karla þriðju Ólympíuleikana í röð. Þetta er hans sjöunda medalía á Vetrarólympíuleikum. „Hann nennir ekki að gera þetta spennandi. Það er „ha det bra“. Johannes Klæbo er farinn! Maður er alveg hættur að eiga orð til að lýsa þessum yfirburðum. Nú er bara að játa sig sigraða. Skák og mát segir Johannes Klæbo. Hann er bara farinn!,“ sagði Gunnar Birgisson í lýsingu sinni. Sigur Klæbo og lýsingu Gunnars má sjá í myndskeiðinu hér að neðan. „Hann gæti farið afturábak í mark, tekið 2–3 kollhnísa, tekið sér kaffi, lagt sig og komið svo í mark. Yfirburðirnir eru slíkir!“ Johannes Høsflot Klæbo varð Ólympíumeistari í þriðja sinn í röð í skiptigöngu karla með miklum yfirburðum. Alls voru tíu medalíuviðburðir á dagskrá. Norski skíðagöngukappinn Sturla Holm Lægreid baðst afsökunar á framhjáhaldi eftir að hafa unnið brons í 20km skíðaskotfimi. Lokakaflinn í sprettgöngu kvenna var æsispennandi en það fór að lokum svo að Svíar tóku öll þrjú verðlaunin. Linn Svahn, Jonna Sundling og Maja Dahlqvist skiptu með sér verðlaununum en Svahn og Sundling háðu mikla baráttu um gullið. Lokasprettinn má sjá hér að neðan. Johannes Høsflot Klæbo varð Ólympíumeistari í þriðja sinn í röð í skiptigöngu karla með miklum yfirburðum. Alls voru tíu medalíuviðburðir á dagskrá. Heimamenn tróna á toppnum Keppni í blönduðu skautaati var afar hörð. Ítalir tóku að lokum gullið og eru þetta önnur gullverðlaun heimaþjóðarinnar. Alls hafa Ítalir náð í 11 verðlaun á leikunum til þessa og sitja sem stendur í efsta sæti yfir heildarverðlaunasöfnun ásamt Norðmönnum sem hafa þó sótt fleiri gull. Hollendingar settu reyndar nýtt Ólympíumet en kepptu í B-úrslitum vegna falls í undanúrslitum. Norðmenn tóku gull í skíðafimi Skíðafimi karla snýst um að setja saman erfiða, fjölbreytta og stílhreina keyrslu niður braut með stökkum og æfingum. Í þremur tilraunum reyna keppendur að skora eins hátt og þeir mögulega geta. Ríkjandi Ólympíumeistarinn Alex Hall frá Bandaríkjunum datt í lokaferð sinni og því var ljóst að Norðmaðurinn Birk Ruud tæki gullið. Þetta eru önnur gullverðlaun Ruud frá Ólympíuleikum en hann vann skíðafimi af stórum palli í Peking árið 2022. Keppni í krullu í tvenndarleik er sýnd á RÚV klukkan 22:20. Keppni í l

Share this article