Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vinsældir Mette-Marit hríðfalla í kjölfar hneykslismála

Read Full Article →

Vinsældir norsku konungsfjölskyldunnar hafa hríðfallið og eru minni en nokkru sinni fyrr, samkvæmt könnun sem norska ríkisútvarpið birti í dag, á afmælisdegi Haralds konungs. 60% segjast styðja konungsfjölskylduna sem er 10% minna en í janúar. Konungurinn sjálfur reyndist vinsælastur og gáfu svarendur honum að meðaltali 9,2 af tíu í einkunn þegar þeir voru spurðir um ágæti hvers og eins sem fulltrúa konungsfjölskyldunnar. Mette-Marit krónprinsessa fékk hins vegar aðeins tæplega fjóra í einkunn, sem er töluvert fall síðan í janúar, þegar meðaleinkunn hennar var 7,4. Mette-Marit hefur verið mikið til umfjöllunar að undanförnu, bæði vegna fyrri samskipta við bandaríska barnaníðinginn Jeffrey Epstein og réttarhalda yfir syni hennar sem sætir ákæru fyrir fjölda kynferðisbrota.

Share this article