- What: An analysis of the potential impact of US tariff policies on Iceland's main export goods.
- Impact: Uncertainty surrounding US trade policy is the primary concern for Iceland's economy.
Innlent | mbl | 22.2.2026 | 20:04 Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir það vera óvissuna sem vegi þyngst í mögulegum áhrifum tollastefnu Bandaríkjanna. Samsett mynd/mbl.is/Hallur Már/Mandel Ngan Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Donald Trump Bandaríkjaforseti Skýr skilaboð til Trumps: „Nei takk“ Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Frederiksen bregst við færslu Trumps Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Trump hækkar tolla » Fleiri tengdar fréttir Það er ólíklegt að Bandaríkjastjórn setji sérstaka tolla á meginútflutningsvörur Íslands til Bandaríkjanna umfram þau 15% sem nú hvíla á almennum vöruflokkum. Þó er það að hluta til undir duttlungum þarlendra stjórnvalda komið og því alls ekki útilokað. Þetta er mat Jóns Bjarka Bentssonar, aðalhagfræðings Íslandsbanka, sem tekur undir með þeim kollegum sínum sem sagt hafa að þegar horft sé fram á við sé það óvissan sem vegi þyngst í mögulegum áhrifum tollanna. Frétt af mbl.is Nýr kafli og óvissan enn mikil „Það eru góðu heilli minni líkur en meiri á að önnur hvor þessara greina verði tolluð með mjög íþyngjandi hætti, en þó getur maður ekki beint útilokað neitt,“ segir hann í samtali við mbl.is. Donald Trump Bandaríkjaforseti hækkaði alþjóðlega tolla úr 10% upp í 15% í gær eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi flesta þeirra tolla sem forsetinn setti á síðasta ári ólögmæta. Frétt af mbl.is Trump hækkar tolla Minni áhrif á íslenskan útflutning en búist var við Stormasöm tollasetning Bandaríkjanna á nánast öll ríki heims á síðasta ári hefur valdið talsverðum usla víða um heim, en áhrif þeirra á hinn íslenska útflutningsgeira hafa reynst minni en óttast var í fyrstu. „Við höfum séð minni áhrif á útflutningsgeiranum hér en maður óttaðist frá þeim tollaaðgerðum sem framkvæmdar voru á síðasta ári,“ segir Jón. Það sé ekki síst vegna þess að Íslendingar hafi fengið hagfelldari tolla á sínar helstu útflutningsvörur en útlit hafi verið fyrir í fyrstu. „Ef þessi 15% almenni tollur sem kynntur var í gær stendur áfram fyrir okkar helstu útflutningsvörur til Bandaríkjanna er það lítil breyting frá því sem verið hefur.“ Frétt af mbl.is Bregðast við tolladómi Trumps Óvissa áframhaldandi vegna tímaákvæðis Jón segir mikla óvissu einnig felast í því að sá reglurammi sem gildi um hina nýtilkomnu tolla sé að þeir gildi einungis í 150 daga áður en þingið þurfi að koma til og staðfesta þá. „Ég sé að kollegar mínir hafa bent á þetta og velt því upp að þetta þýði einfaldlega að það verði áframhaldandi óvissa, enda væri ekki komið neitt endanlegt tollaumhverfi sem væri hægt að byggja á í áætlunum fyrirtækja, fjárfestingum eða öðru slíku,“ segir hann. „Þannig að það er erfitt að segja um það annað en að umhverfið til skemmri tíma virðist ekki vera ólíkt því sem verið hefur, en að sama skapi er óvissan ennþá viðvarandi.“ Stærstu útflutningsflokkar Íslands hólpnir – í bili Jón telur það þó ólíklegt að settir verði íþyngjandi tollar umfram hinn almenna 15% toll á meginútflutningsvöruflokka Íslands til Bandaríkjanna – sjávarafurðir annars vegar og lyf- og lækningartæki hins vegar. „Okkar útflutningur til Bandaríkjanna er nokkuð samanþjappaður í nokkrum afmörkuðum vöruútflutningsflokkum – það eru sjávarafurðirnar sem við flytjum mikið af, og svo auðvitað lyf- og lækningatæki. Ef það væru einhver mjög ströng tollaskilyrði fyrir annan hvorn þessara vöruflokka þá væru það slæmar fréttir fyrir okkur, en svo hefur hins vegar ekki verið hingað til.“ Frétt af mbl.is Bandarískir tollar hafa áhrif: Óvissa ríkir Hvorki hafi orðið af almennilegri framkvæmd lyfjatollanna sem áætlaðir voru, né hafi sérstakri tollalagningu sjávarútvegsvara verið velt upp af neinni alvöru, enda hafi Bandaríkjastjórn áttað sig á því að matvælatollar séu heldur óheppilegir. Út frá fyrri reynslu, þar sem Bandaríkjastjórn hafi bakkað mikið með tolla á nautakjöt og gert víðtækar undanþágur, kæmi á óvart ef sérstaklega ætti að setja háa tollamúra á íslenskan fisk. „En sem fyrr segir, þá verður það bara svolítið undir duttlungum amerískra stjórnvalda komið hvort við njótum þolanlegra tollaálagninga á þessar vörur, eða hvort það verði eitthvað lagt á annan hvorn þessara vöruflokka.“ Tengdar fréttir Donald Trump Bandaríkjaforseti Skýr skilaboð til Trumps: „Nei takk“ Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Frederiksen bregst við færslu Trumps Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Trump hækkar tolla » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Leikmannahópur með slæmar venjur One Battle After Another best á BAFTA Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Þetta er dýrasta skíðasvæði í heimi Börsungar á toppinn Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Sinueldurinn slökktur norðanmegin Mótmæla af krafti á nýjan leik í Íran Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Gengur morðingi laus? Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Forstjórinn með stöðu sakbornings Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Leikmannahópur með slæmar venjur One Battle After Another best á BAFTA Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Þetta er dýrasta skíðasvæði í heimi Börsungar á toppinn Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Munum sjá snjó í borginni í vikunni Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Sinueldurinn slökktur norðanmegin Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Gengur morðingi laus? Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Forstjórinn með stöðu sakbornings Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka