Indland og Bandaríkin hafa frestað viðskiptaviðræðum sem áttu að eiga sér stað í þessari viku. Ákvörðunin tengist úrskurði Hæstaréttar Bandaríkjanna fyrir helgi þar sem tollastefna Trumps var dæmd ólögmæt. Á vef BBC segir að indversk sendinefnd átti að ferðast til Washington í vikunni til að ganga frá skilmálum um bráðabirgðaviðskiptasamning sem var kynntur fyrr í þessum mánuði. Samkomulagið átti meðal annars að lækka bandaríska tolla á indverskar vörur úr 50% í 18% en úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna ásamt tilkynningu forsetans um nýja 15% gjaldtöku hefur skapað óvissu á markaðnum. Sjá einnig Indland að lækka tolla á evrópska bíla Viðskiptasamband Indlands og Bandaríkjanna hefur einkennst af mikilli óreiðu undanfarna mánuði. Trump byrjaði á því að leggja 50% tolla á Indverja þann 27. ágúst í fyrra sem tengdust kaupum Indverja á rússneskri olíu. Í byrjun febrúar tilkynnti Trump að búið væri að semja um bráðabirgðasamning eftir símtal við Narendra Modi forsætisráðherra Indlands. Indverskir bændur hafa þó verið áberandi í afstöðu sinni gagnvart innflutningi á bandarískum landbúnaðarvörum sem þeir segja að muni lækka verðmætai innlendra landbúnaðarvara. Viðskiptaráðherra Indlands, Piyush Goyal, hefur einnig sagt að Indverjar munu ekki aflétta indverskum lögum sem snúa að erfðabreyttum matvælum og segir að þær ráðstafanir séu til staðar til að verja bændur í landinu.