Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fresta at­kvæða­greiðslu um við­skipta­samning

Read Full Article →

Evrópuþingið hefur frestað atkvæðagreiðslu um viðskiptasamning Evrópusambandsins við Bandaríkin eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um hækkun almennra alþjóðatolla á viðskiptaþjóðir Bandaríkjanna úr 10% í 15%. Til stóð að viðskiptanefnd Evrópuþingsins myndi greiða atkvæði á morgun um viðskiptasamning við Bandaríkjanna sem myndi leiða til þess að tollar á ákveðnar vörur myndu lækka. Ákvörðun Trumps fylgdi í kjölfar þess að Hæstiréttur Bandaríkjanna ógilti stóran hluta af tollum ríkisstjórnar Trumps þar sem hann hafi farið út fyrir valdsvið sitt. Trump fór með tolla upp í 15%, sem er það löglega hámark sem má vera í gildi í 150 daga áður án samþykkis fulltrúadeildar þingsins. Sjá einnig Hæstiréttur felldi flesta tolla Trumps úr gildi Evrópsk stjórnvöld hafa kallað eftir upplýsingum um áhrif hinna nýju tolla á þá viðskiptasamninga sem þegar hefur verið samið um, sem leiddu af sér 15% tolla á vörur frá Evrópusambandinu og 10% á breskar vörur. Viðskiptanefnd Evrópuþingsins hélt neyðarfund í morgun til að ræða hina nýju tolla. Bernd Lange, formaður viðskiptanefndarinnar, sagði að vinna við innleiðingu viðskiptasamnings yrði sett á ís í kjölfar dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna. Í færslu á X varpaði hann þeirri spurningu hvort hinir nýju tollar feli í sér brot á viðskiptasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem samið var um síðasta sumar. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagði í yfirlýsingu sem send var út í gær að „samningur er samningur“. Hún geri ráð fyrir að báðir aðilar standi við skuldbindingar sínar. Now official: EP work on EU-US deal is on hold until further notice! Our negotiating team just decided to put on hold @ep_trade legal implementation of Turnberry deal&postone vote foreseen for tomorrow. Clarity&legal certainty are needed before any further steps can be taken — Bernd Lange (@berndlange) February 23, 2026

Share this article