Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 23.2.2026 | 10:10 Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gunnar Máni og Karen Björk ásamt sonum sínum, Erni Degi, Víði Mána og Ríkharði Darra. Þau styðja Grindavík í íþróttum gegnum súrt og sætt. Orri Páll Ormarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Foreldrar telja andlega heilsu barna verri en áður Ánægjulegt að helgistundin fari fram í Grindavík Dýrmætt fyrir Grindvíkinga að verja jólunum heima Kanna líðan og viðhorf Grindvíkinga Endurreisa atvinnulíf Grindavíkur » Fleiri tengdar fréttir Líf Gunnars Mána Arnarsonar tók heldur betur nýja og óvænta stefnu þegar hann missti heimili sitt og vinnuna með sex mánaða millibili. Hann bjó ásamt eiginkonu sinni og þremur sonum þeirra í Grindavík og þurftu þau eins og aðrir íbúar að yfirgefa bæinn í nóvember 2023. Sumarið 2024 var Gunnar Máni svo orðinn atvinnulaus eftir eldsvoðann mikla í Kringlunni en verslunin sem hann vann hjá, Macland, varð eldinum að bráð. Gunnar Máni viðurkennir að næstu mánuðir hafi verið erfiðir og reynt verulega á en þegar einar dyr lokast opnast gjarnan aðrar og hann ákvað að fara út í eigin rekstur; stofnaði ásamt félaga sínum vefverslunina Lune og hafa viðtökur verið vonum framar. „Ég var orðinn þreyttur á óvissunni og ákvað því að skapa mína eigin óvissu,“ segir hann, kíminn á svip. Lune ýtti úr vör í lok árs 2024 og Gunnar Máni segir fyrsta heila árið, 2025, hafa farið langt fram úr væntingum en velta fyrirtækisins var 190 milljónir króna. „Það er fáránlegt fyrir nýtt félag sem er að keppa við alla þessa hákarla á markaðnum. Við höfum verið duglegir að þiggja holl ráð og fá einstaklinga og fyrirtæki til að benda okkur á vörur. Núna eru um 1.000 vörur á síðunni hjá okkur.“ Lune selur síma, tölvur, snjallúr, skjái, lífsstílsvörur, skrifstofuvörur og margt margt fleira. Gunnar Máni Arnarson hefur snúið vörn í sókn. mbl.is/Árni Sæberg Kolféllu fyrir Grindavík Fjölskyldan fékk hús sitt í Grindavík greitt út og hefur komið sér vel fyrir í Hafnarfirði núna. Öll sakna þau þó Grindavíkur. „Það er mikið landsbyggðar-DNA í mér og þess vegna lagðist svo vel í mig að búa og ala börnin upp í Grindavík,“ segir Gunnar Máni en hvorugt þeirra hjóna á rætur þar. „Við áttum vinafólk í Grindavík og féllum fyrir bænum. Þar voru öll þau lífsgæði sem við sækjumst eftir. Við seldum því litla íbúð í Hafnarfirði og keyptum risastórt hús í Grindavík árið 2021. Tilfinningin var strax mjög sterk: Þetta er okkar staður og hér ætlum við að eiga heima um ókomna framtíð. Ég held meira að segja að ég hafi orðað það eitthvað á þessa leið: Hér ætla ég að deyja sem gamall sáttur maður.“ Rýmingin var mikið áfall fyrir alla Grindvíkinga og Gunnar Máni skilur vel fólk sem vill snúa þangað aftur, ekki síst það sem er með djúpar rætur á staðnum. Sjálf eru þau hins vegar ekki á leið aftur til Grindavíkur. „Þegar blessaður maðurinn féll í sprunguna og lést horfðum við hjónin hvort á annað og sögðum: NEI, við förum aldrei aftur! Það er ekki hægt að taka þá áhættu með þrjú lítil börn. Það er synd vegna þess að árin í Grindavík eru með þeim bestu í mínu lífi og ég vildi óska að þetta hefði ekki farið eins og það fór. En maður verður að setja öryggið á oddinn.“ Nánar er rætt við Gunnar Mána í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Foreldrar telja andlega heilsu barna verri en áður Ánægjulegt að helgistundin fari fram í Grindavík Dýrmætt fyrir Grindvíkinga að verja jólunum heima Kanna líðan og viðhorf Grindvíkinga Endurreisa atvinnulíf Grindavíkur » Fleiri tengdar fréttir Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lyfin kosta fjóra milljarða árlega Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB sögð geta orðið í ár Smáríkið á uppleið, ÁTVR missir flugið OK verðlaunað af Fortinet Heimsfræg Íslandsvinkona skilin eftir stutt hjónaband Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Það eina sem heldur Pútín á lífi Hægir á byggingu íbúða næstu árin Telur að Guðmundarlundi hafi verið bjargað Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Sendir frá sér yfirlýsingu vegna Kúbuferða Vatnsbólin í hættu hefði vindáttin verið önnur Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Lyfin kosta fjóra milljarða árlega Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB sögð geta orðið í ár Smáríkið á uppleið, ÁTVR missir flugið OK verðlaunað af Fortinet Heimsfræg Íslandsvinkona skilin eftir stutt hjónaband Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Það eina sem heldur Pútín á lífi Líf verður oddviti VG Meginútflutningsvörur Íslands hólpnar í bili Hægir á byggingu íbúða næstu árin Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Sendir frá sér yfirlýsingu vegna Kúbuferða Vatnsbólin í hættu hefði vindáttin verið önnur Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka

Share this article