Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.2.2026 | 11:55 Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Birgir Finnsson, settur slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, segir slökkviliðsmenn frá öllum stöðvum höfuðborgarsvæðisins hafa verið kallaða út í gær vegna sinueldsins í Kópavogi. Samsett mynd mbl.is/Anton Brink/Ljósmynd/Aðsend Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Um 30-40 slökkviliðsmenn tóku þátt í að slökkva sinueldinn í Kópavogi í gær. Starfandi slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir mestar líkur á að um íkveikju hafi verið að ræða, þó að það hafi að vísu getað verið óviljaverk. Þá fundu slökkviliðsmenn verulega fyrir ágangi almennings á vettvangi. Í samtali við mbl.is segir Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, að ekki sé búið að fara yfir hvað sinueldurinn náði yfir stórt svæði í gær. Hins vegar hafi umfangið verið mikið hjá slökkviliðinu þegar horft sé til þess hve mikill mannskapur kom að slökkvistarfinu. Frétt af mbl.is Myndir sýna hvernig sinueldurinn breiddist út Um 30-40 slökkviliðsmenn tóku þátt í slökkvistarfinu í gær. Þá eru ekki taldir með aðrir viðbragsaðilar sem einnig voru á svæðinu. mbl.is/Anton Brink Um 30–40 slökkviliðsmenn „Allar stöðvar voru sendar þarna á staðinn og síðan hringdum við út tvær vaktir. Við kölluðum inn fólk af frívakt, bæði til þess að aðstoða okkur á staðnum en ekki síður til þess að manna síðan á stöðvunum til þess að takast á við allt annað sem rúllar þó að það sé gróðureldur eins og við viljum kalla þetta. Þetta voru svona 30-40 manns frá okkur. Síðan var talsvert af lögreglumönnum líka vegna umferðarinnar og fólksins. Við nutum aðstoðar lögreglunnar með dróna til þess að ná yfirsýn og svo var eitthvað fólk líka frá björgunarsveitum,“ segir Birgir. Birgir segir að mestar líkur séu á að um íkveikju hafi verið að ræða. mbl.is/Anton Brink Almenningur að valda töfum Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagði blaðamanni mbl.is í gær að almenningur sem hópaðist að svæðinu hafi ekki gert viðbragðsaðilum slökkvistarfið auðveldara. Aðspurður segist Birgir taka í sama streng. „Já, við fundum fyrir því. Annars vegar er það umferðin – við lendum í að það hægir á okkur að komast að staðnum þegar fólk fer þarna til þess að reyna að sjá þetta betur. Þá verður svolítið umferðaröngþveiti sem tefur okkur. Síðan auðvitað er það þannig að þegar almenningur fer og er nálægt þá þurfum við líka svolítið að einbeita okkur að því að passa að fólk setji sig ekki í hættu. Það gerir það þá að verkum að við þurfum að setja einhverja í þau verkefni og þeir sinna þá engu öðru á meðan. Þannig að já, við urðum aðeins varir við það í gær.“ Frétt af mbl.is „Almenningur ekki að hjálpa til“ „Við lendum í að það hægir á okkur að komast að staðnum þegar fólk fer þarna til þess að reyna að sjá þetta betur. Þá verður svolítið umferðaröngþveiti sem tefur okkur.“ mbl.is/Anton Brink Mestar líkur á íkveikju Hann segir orsök eldsins enn ekki liggja fyrir. Hins vegar sé ólíklegt að eldurinn hafi kviknað af sjálfu sér og bendir Birgir á að svæðið sé útivistarsvæði og ekkert rafmagn þar í kring. „Því miður þegar það verður svona [...] þá eru alltaf mestar líkur á því að þarna sé um íkveikju að ræða en auðvitað ætla ég ekki að gera lítið úr því heldur; það getur verið að það sé óviljandi, að fólk t.d. hendi sígarettu frá sér í þennan þurra gróður sem er núna.“ mbl.is/Anton Brink Það þarf lítið til. „Já, og ég held að fólk geri sér ekkert grein fyrir hvað það þarf lítið til vegna þess að það náttúrulega er vetur, segir Birgir og vísar jafnframt til sinubrunans á Mýrum í Borgarfirði sem varð í mars 2006. Þar var bara frost og ísskán yfir öllu vatni. Þar brann nú ekkert smáræði.“ Frétt af mbl.is Mesti sinueldur í Íslandssögunni mbl.is/Anton Brink Ekki lengur að fylgjast með Er einhver starfsemi í gangi í dag á svæðinu? „Nei, bara – við fórum þarna sem sagt seint í gærkvöldi og könnuðum með dróna. Ég held að við séum í rauninni ekkert lengur að fylgjast með þar. Núna erum við bara að ganga frá okkar búnaði. Svo er svolítið sérstakt að vera með snjóbyl og ófærð á Suðausturlandi og gróðurelda á höfuðborgarsvæðinu. Þannig er bara veðrið orðið hjá okkur,“ segir slökkviliðsstjórinn að lokum. Frétt af mbl.is Enginn sineldur og nóttin óvenju róleg Birgir Finnsson verður settur slökkviliðsstjóri í eitt ár. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fór vel á með Birki og Guardiola Setja í gang vatnsaflsvirkjun við Langadalsá Sameiginlega framboðið nefnt Vinstrið Messi missti stjórn á skapi sínu Setja viðskiptasamning við Bandaríkin á ís Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vatnsbólin í hættu hefði vindáttin verið önnur Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Forstjóri Norðuráls: Tekur 90 daga Það eina sem heldur Pútín á lífi Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Fór vel á með Birki og Guardiola Setja í gang vatnsaflsvirkjun við Langadalsá Sameiginlega framboðið nefnt Vinstrið Messi missti stjórn á skapi sínu Setja viðskiptasamning við Bandaríkin á ís Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forstjóri Norðuráls: Tekur 90 daga „Eins og við værum frummenn“ Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Sinueldurinn hefur verið slökktur Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka

Share this article