Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fundu hopphjól við köfunaræfingu í höfninni

Read Full Article →

Nokkrum brá þegar þeir sáu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins að störfum í Kópavogshöfn í gær. Ekki var þó ástæða til nokkurs uggs því slökkviliðsmenn voru að æfa útkall í sjó með samstarfi kafara og báta. Rafhlaupahjólið híft upp úr höfninni.Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins Þar var því blessunarlega engum til að bjarga að þessu sinni. Kafarar komu þó ekki allslausir upp á yfirborðið því meðan þeir svömluðu neðansjávar ráku þeir augun í rafhlaupahjól frá hjólaleigu sem einhver virðist hafa ákveðið að skilja eftir í höfninni. Hjólið var híft upp og mátti sjá að nokkur sjávargróður hafði umlukið það. Slökkviliðsmenn á fullu við björgunaræfingu.Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Share this article