Óeirðir hafa borist um Mexíkó upp á síðkastið. Vopnaðir hópar glæpamanna kveiktu í matvöruverslunum, bönkum og farartækjum víða í Mexíkó í gær eftir að Nemesio Oseguera Cervantes féll í bardögum við lögreglu. Hann var yfirmaður Jalisco-glæpagengisins sem er talið vera ein hættulegustu skipulögðu glæpasamtök landsins. Landsliðið kom til Mexíkó eftir 30 klukkustunda ferðalag í gær en fótboltaleikjum hefur verið frestað í landinu eftir að til óeirðanna kom. Ekki hefur þó komið til tals að fresta eða aflýsa leik Íslands og Mexíkó samkvæmt Ómari Smárasyni, samskiptastjóra KSÍ sem staddur er með hópnum í Querétaro. Við fylgjumst með fréttum og það hefur engin ákvörðun verið tekin um að fresta leiknum eða hætta við hann. Það hefur ekki komið til tals. Við fáum upplýsingar frá knattspyrnusambandinu og yfirvöldum hér og erum í sambandið við yfirvöld heima. Jafnframt segir Ómar forgangsatriði að gæta fyllsta öryggis og taka enga áhættu. Hópsins sé vel gætt og öryggsigæslan öflug. „Það hafa að okkur skilst ekki verið nein læti hér í Querétaro eða því fylki.“