Vopnaðir hópar glæpamanna kveiktu í matvöruverslunum, bönkum og farartækjum víða í Mexíkó í gær eftir að Nemesio Oseguera Cervantes féll í bardögum við lögreglu. Hann var yfirmaður Jalisco-glæpagengisins sem er talið vera ein hættulegustu skipulögðu glæpasamtök landsins. Mexíkóski herinn réðist til atlögu gegn Cervantes og liðsmönnum hans í gær. Cervantes særðist í árásinni og lést á leiðinni á sjúkrahús. Sex aðrir meðlimir glæpagengisins. féllu í árásinni. Árásum mexíkóskra yfirvalda á höfuðpaura glæpasamtaka hefur áður verið svarað með víðtækum skemmdarverkum og ofbeldi. Viðbrögðin í gær koma því ekki á óvart. Víða um land fóru hópar glæpamanna um, kveikjandi í munum og ógnandi fólki. Lögregla og her brugðust við með því að setja upp vegatálma og grípa til annarra aðgerða til að halda aftur af ofbeldisöldunni. Erlend flugfélög hafa fellt niður flug til Jalisco og erlend stjórnvöld hafa hvatt landa sína til að hafa varann á sér í vissum hlutum Mexíkós.