Um 32 hektarar brunnu í eldunum í gær - sem er svipað og 45 Laugardalsvellir. Þeir kviknuðu ofan við Vatnsvík við suðvesturhorn Elliðavatns. Þar er mikið af þurru grasi og um tíma náði eldlínan þaðan og að útivistarsvæðinu í Guðmundarlundi, sem er í um kílómetra fjarlægð. Allur skógurinn hefði getað brunnið Kristinn H. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs sem hefur umsjá með Guðmundarlundi segist vart mega til þess hugsa, hefði eldurinn náð að læsa sig í trén þar. „Ég reikna með, ef þau hefðu náð að fuðra, þá myndast svo mikill hiti að þetta hefði farið áfram í gegnum skóginn. Jafnvel í gegnum allan skóginn.“ En það gerðist ekki, því eldurinn stöðvaðist við mjóan göngustíg í norðurjaðri lundarins. „Hér erum við með stíg sem er hluti af eldvörn,“ segir Kristinn. Þannig að þessi litli stígur varnaði því að eldurinn bærist í Guðmundarlund? „Já, hann gerði það. Þannig að margur er knár þó hann sé smár? „Já. Það er svoleiðis.“ Margir hefðu grátið hefði brunnið í Guðmundarlundi Um sex áratugir eru síðan skógrækt hófst í Guðmundarlundi sem er vinsælt útivistarsvæði sem um 100 þúsund sækja heim á hverju ári. „Það hefði verið dapurlegt að missa skóginn og alla þessa ræktun sem hérna er og fólk hefði, held ég grátið. Margir,“ segir Kristinn. Vindátt skipti sköpum Í gær var austan vindátt, hefði hún verið önnur, hefðu vatnsból höfuðborgarbúa verið í hættu að mati Veitna sem reka 23 vatnsból á fjórum svæðum í Heiðmörk. „Ef vindáttin hefði verið að vestan hefði sinueldurinn mögulega getað fæst í átt að vatnstökusvæðum Veitna,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Veitna. „Ef við lendum í því að vatnstökusvæðin okkar brenna þá getur bæði komið mengun og það getur líka komið mikil rekstrarstöðvun.“ Berskjölduð að vissu leyti Stefnt er að samþykkt deiliskipulags fyrir Heiðmörk síðar í ár. „Eitt af því sem við höfum sett á oddinn þar eru betri brunahólf,“ segir Sólrún. „Að hólfa betur, þannig að ef það kemur eldur, þá færist hann ekki á milli allra vatnstökusvæðanna okkar Einnig viljum við banna meðferð elds á ákveðnum stöðum innan vatnstökusvæðisins.“ Samkvæmt almannavarnalögum bera Veitur ábyrgð á verndum vatnsbóla. „En við höfum ekki alveg skilgreint umboð um að við getum gert það sem við teljum okkur þurfa að gera.“ Þarf að hraða þessu ferli? „Það þarf að hraða því. Við þurfum að klára þetta núna.“ Eru vatnsbólin of berskjölduð? „Þau eru það að vissu leyti,“ segir Sólrún. Vatnsbólin í Heiðmörk eru að vissu leyti berskjölduð, segir framkvæmdastjóri Veitna. Hagstæð vindátt varð þeim til happs þegar gróðureldar loguðu í Elliðaárdal í gær, lítill göngustígur bjargaði Guðmundarlundi frá bruna.