Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Áætla að yfir 32 hektarar hafi brunnið

  • What: An estimated 32 hectares burned in a wildfire near Elliðavatn in the capital area.
  • Impact: Disruption to local operations, with fire departments and authorities responding.
Read Full Article →

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins áætlar að rúmlega 32 hektarar hafi brunnið í gróðureldum við Elliðavatn í gær. Sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins varar við áframhaldandi eldhættu. „Þessi úði sem kom í morgun hjálpar. Það skiptir máli fyrir okkur að fá smá bleytu í þetta, þá eru minni líkur, en þetta verður eitthvað hættulegt fram á vorið. Verði ekki bleyta þá er heilmikil brunahætta,“ segir Brynjar Friðriksson, sviðsstjóri aðgerðasviðs hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Eldsupptök eru til rannsóknar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsóknina og kannar meðal annars upplýsingar frá almenningi, segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Eldurinn kviknaði síðdegis í gær og breiddist hratt út. Hann barst að Guðmundarlundi og Þingahverfi í Kópavogi. Fjölmennt slökkvilið barðist við eldinn og naut aðstoðar lögreglu og björgunarsveita. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins um klukkan átta í gærkvöld og var fámenn vakt fram eftir kvöldi. „Við nutum aðstoðar lögreglu með dróna til að skanna svæðið í myrkrinu og þeir voru að finna hreiður hingað og þangað. Þá sendum við mannskap á þá staði til að slökkva,“ segir Brynjar. Brynjar hvetur fólk til að fara varlega og hafa umsvifalaust samband við slökkvilið verði það vart við eld eða reyk á förnum vegi. Veistu hvað þetta var stórt svæði? „Það var skotið á þetta í drónamynd að þetta væri rúmlega 32 hektarar. Eitthvað í kringum það.“

Share this article