Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Þremur komum Icelandair frá Bandaríkjunum aflýst Markús Þ. Þórhallsson Boeing 737 MAX þota Icelandair á flugi. RÚV / Ragnar Visage Þremur flugferðum Icelandair frá New York og Boston sem lenda áttu í Keflavík um klukkan sex í fyrramálið hefur verið aflýst að því er segir á vef Isavia. Allt annað flug er á áætlun. Illviðri sem hefur gengið yfir norðausturhluta Bandaríkjanna hefur valdið samgöngutruflunum og rafmagnsleysi. Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Ástralir vilja losna við Andrew úr ríkiserfðaröðinni Forsætisráðherra Ástralíu hvetur Bretland til að hefja breytingar á ríkiserfðaröðinni og fjarlæga Andrew Mountbatten-Windsor. Breytingar á röðinni krefjast samþykkis hinna 14 samveldisríkjanna sem hafa Karl III konung sem þjóðhöfðingja. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Rússland Lögreglumaður fórst í sprengingu nærri lestarstöð í Moskvu Karlmaður framdi sjálfsvígssprengjuárás nærri lestarstöð í Moskvu skömmu eftir miðnætti að staðartíma. Lögreglumaður lét lífið og tveir til viðbótar særðust. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Íran Hótanir ganga á víxl í aðdraganda kjarnorkuviðræðna Íranar og Bandaríkjamenn halda áfram hótunum um árásir og grimmilega hefnd á meðan undirbúningur að næstu lotu kjarnorkuviðræðna stendur yfir. Íranar segja drög í smíðum. Stúdentar mótmæla klerkastjórninni í upphafi misseris. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Bandaríski sendiherrann mætti ekki á fund í franska utanríkisráðuneytinu Sendiherra Bandaríkjanna í Frakklandi mun ekki lengur hafa beinan aðgang að ráðherrum landsins. Hann mætti ekki á fund sem hann var kallaður á í dag. Utanríkisráðherra Frakklands segir þetta sýna skort á skilningi á grundvallarkröfum sendiherra. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Stjórnvöld með áætlun til bóta varðandi vistheimili Stjórnvöld hafa lagt til aðgerðaáætlun til að bæta úr málefnum þeirra sem dvöldu á vistheimilum sem börn. Breyta þarf lögum til að veita heimildir fyrir greiðslu sanngirnisbóta og rannsókn á heimilunum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tjón upp á tugi þúsund milljarða króna Heildartjón vegna innrásarstríðs Rússa í Úkraínu er talið jafngilda 24 þúsund milljörðum íslenskra króna. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Útsýnispallurinn í Reynisfjöru hvarf næstum Útsýnispallurinn í Reynisfjöru næstum hvarf í miklu brimróti og stórstreymi í gærkvöld. Landeigandi segir þetta þó ekki ógna ferðamönnum því ekki er fært alveg niður í fjöruna. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Lítill göngustígur var bjargvætturinn Vatnsbólin í Heiðmörk eru að vissu leyti berskjölduð, segir framkvæmdastjóri Veitna. Hagstæð vindátt varð þeim til happs þegar gróðureldar loguðu í Elliðaárdal í gær, og lítill göngustígur bjargaði Guðmundarlundi frá bruna. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Hlynur Már sækist eftir formannssæti VG Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Hlynur Már Ragnheiðarson býður sig fram til formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Formannskjör fer fram á landsfundi flokksins í byrjun mars. Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur þegar tilkynnt framboð en Svandís Svavarsdóttir sækist ekki eftir endurkjöri. Aðsend Hlynur Már, sem er sjúkraliðanemi, tilkynnti framboð sitt fyrr í dag. Í tilkynningunni segir hann stefnur sínar „ríma að mestu ef ekki öllu leyti við stefnur Vinstri grænna og því tel ég mig vera á réttum stað í VG til að gera breytingar til batnaðar og efla ítök og vinsældir vinstrisins á Íslandi“. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Vítahringur Margrétar Löf Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Nýir þættir um Margréti varpa ljósi á flókinn fjölskylduvanda sem virtist hverfast um andlegt ástand hennar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Vonlítil um stríðslok og óttast um fjölskylduna á hernumdu svæði Úkraínsk kona sem býr hér á landi segir erfitt að halda í vonina um stríðslok, en á morgun eru fjögur ár liðin frá innrás Rússa. Hún lætur ekki nafns síns getið því hún óttast um fjölskyldu sína sem býr á svæði sem er á valdi Rússa. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Ítrekar samstarfsvilja við stúdenta sem hafa lagt fram vantrauststillögu Rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum. Meirihluti Stúdentaráðs Háskóla Íslands hefur lagt fram vantrauststillögu á hendur rektors sem verður tekin til umræðu á morgun. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál „Við erum að upplifa mikið bakslag“ Utanríkisráðherra flutti í dag stefnuræðu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Sviss. Hún varaði við mikilli afturför í grundvallarmannréttindum á alþjóðavísu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Aðgerðasinnar hengdu upp nýtt verk í Louvre-safninu: „Nú svitnar hann“ Hópur aðgerðasinna, sem kallar sig Everyone hates Elon, hengdi upp ljósmynd af Andrew Mountbatten Windsor í Louvre-safninu. Myndina tók fréttaljósmyndari af Mountbatten Windsor á leiðinni frá lögreglustöðinni eftir að hann var handtekinn. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Peter Mandelson handtekinn Hallgrímur Indriðason Lögreglan í Lundúnum handtók í dag Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, í tengslum við rannsókn á misferli í opinberu starfi. Handtakan kemur í framhaldi af ásökunum um óeðlileg tengsl við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Mandelson var rekinn úr starfi í september, og hætti í lávarðadeild þingsins eftir birtingu skjalanna fyrr í mánuðinum. Síðan þá hefur lögreglan rannsakað hvort Mandelson hafi lekið innherjaupplýsingum til Epsteins. Mandelson fyrir utan heimili sitt um helgina. AP/PA / James Manning Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mexíkó Tugir fallnir í ofbeldisöldu í Mexíkó 25 mexíkóskir þjóðvarðliðar hafa verið drepnir auk að minnsta kosti 30 liðsmanna glæpagengis í ofbeldisöldu sem braust út í Mexíkó í gær. Utanríkisráðuneytinu er ekki kunnugt um Íslendinga á óeirðasvæðunum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Einn hermaður með íslenskan ríkisborgararétt í ísraelska hernum Einn hermaður í ísraelska hernum er með bæði íslenskan og ísraelskan ríkisborgararétt samkvæmt svörum frá talsmönnum ísraelska hersins. Tugþúsundir hermanna ísraelska hersins bera hið minnsta tvö ríkisföng. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Miðflokkurinn hakkaður Framkvæmdastjóri Miðflokksins segir svokallaða „botta“ eða stafræn vélmenni hafa ráðist á heimasíðu flokksins. Unnið er að viðgerð og standa vonir til að síðan verði komin í samt lag í kvöld. 23. febrúar 2026 kl. 15:14MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Joey Christ klárar þríleikinn Rapparinn Jóhann Kristófer Stefánsson eða Joey Christ sendi þann 31. október frá sér plötuna Joey 3. Það er síðasta platan í þríleik sem hófst þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í bransanum. 23. febrúar 2026 kl. 15:08INNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Skjöl um fljúgandi furðuhluti reynast vonbrigði Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari segir að birting áður leynilegra skjala um fljúgandi furðuhluti hafi alltaf reynst óskaplega mikil vonbrigði. Bandaríkjaforseti hefur skipað alríkisstofnunum að birta gögn um fljúgandi fyrirbæri og geimverur. 23. febrúar 2026 kl. 14:53INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Bílnúmeralesarar breyta engu fyrir 75% gesta Bílnúmeralesarar við móttökustöðvar Sorputeknir verða teknir í notkun á höfuðborgarsvæðinu 1. mars. Þeim er ætlað að rukka viðskiptavini sem ekki hafa greitt rétt í sjóði sveitarfélaga. 23. febrúar 2026 kl. 14:32ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Veðurviðvörun hjá yfir 40 milljónum manna Snjóbylur sem gengur nú yfir norðausturhluta Bandaríkjanna hefur valdið samgöngutruflunum og rafmagnsleysi. Jafnfallinn snjór er allt að 60 cm og minnst fimm ríki hafa orðið fyrir barðinu á veðrinu. 23. febrúar 2026 kl. 13:55INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hafró metur hversu mikið laxeldi er óhætt að stunda í Mjóafirði Hafrannsóknastofnun keyrir nú líkön til að meta hve mikið laxeldi sé óhætt að stunda í Mjóafirði. Hægt var að nýta eldri straumrannsóknir meðal annars. Stefnt er að því að bjóða út eldissvæði í firðinum. 23. febrúar 2026 kl. 13:48INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kjartan Vídó vill á lista hjá Sjálfstæðismönnum Brynjólfur Þór Guðmundsson Kjartan Vídó Ólafsson sækist eftir þriðja til fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir kosningar í vor. Kosið verður í efstu sæti listans í prófkjöri 13. mars. Kjartan Vídó Ólafsson Aðsend Kjartan hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri Handknattleikssambands Íslands og er meðal stofnenda handverksbrugghússins The Brothers Brewery. Hann leggur í framboðstilkynningu áherslu á að vinna að áframhaldandi uppbyggingu bæjarins, styrkja grunnþjónustu, styðja við atvinnulífið og standa vörð um hag íbúa á öllum aldri. Kjartan segir góð og heiðarleg stjórnmál byggjast á nálægð, trausti og sterkri liðsheild. Hann vilji vera sýnilegur og aðgengilegur. 23. febrúar 2026 kl. 13:33ÍÞRÓTTIR Fótbolti Ekki komið til tals að aflýsa leiknum - KSÍ heldur sínu striki Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er statt í Mexíkó og mætir heimamönnum að óbreyttu í vináttuleik í Querétaro aðfararnótt fimmtudags. 23. febrúar 2026 kl. 12:51INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kjúklingur innkallaður vegna salmonellu Fréttastofa RÚV Matfugl hefur innkallað eina framleiðslulotu fyrirtækisins af ferskum heilum kjúklingi sem framleiddur er fyrir Bónus. Grunur leikur á að salmonella finnist í þessari framleiðslulotu (nr. 011-26-03-5-64) og varar Matvælastofnun því við neyslu á henni. Fólk sem hefur keypt kjúklinga í þessari lotu á ekki að neyta þeirra heldur farga þeim eða skila til viðkomandi verslunar. Eldaðir heilir kjúklingar. Mynd úr safni. Shutterstock 23. febrúar 2026 kl. 12:33INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðbo
The provided article describes a weather-related operational disruption affecting Icelandair flights, not a software vulnerability or cybersecurity threat. No technical details regarding an attack vector, CVSS score, or affected software versions are present.