Boeing 737 MAX þota Icelandair á flugi.RÚV / Ragnar Visage Þremur flugferðum Icelandair frá New York og Boston sem lenda áttu í Keflavík um klukkan sex í fyrramálið hefur verið aflýst að því er segir á vef Isavia . Allt annað flug er á áætlun. Illviðri sem hefur gengið yfir norðausturhluta Bandaríkjanna hefur valdið samgöngutruflunum og rafmagnsleysi. Á níunda þúsund flugferðum var frestað eða aflýst í gær, það er um 19 prósent allra flugferða dagsins. Búist er við að hlutfallið fari niður í 7 af hundraði í dag. Stormurinn geisaði á víðfeðmu svæði sem er snævi þakið og leiddi til þess að loka þurfti fjölda vega. Skólahaldi var víða aflýst og almenningur var hvattur til að halda sig heima.