Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Allt var á hreyfingu í óveðri undir Eyjafjöllum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.2.2026 | 10:17 Allt var á hreyfingu í óveðri undir Eyjafjöllum Kafaldsbylur hylur hæð og lægð, eins og sungið er í lagi. Kóf og langar bílalestir og björgunarsveit á staðnum. Ljósmynd/Þorsteinn Jónsson Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Þrálátar austanáttir, samspil hita og raka og um margt óvenjulegar aðstæður á landi ollu þeim óvenjulegu veðrabrigðum sem voru undir Eyjafjöllum á laugardag. Stóðu þá stífar áttir af austri svo lausan snjó inni á heiðum og í dalverpum undir Fjöllum skóf til suðurs svo blint varð á stuttum kafla þjóðvegarins. Ökumenn á hundruðum bíla, misjafnlega vel útbúnum, lentu í vandræðum þegar þeir þurftu að stöðva bíla sem fljótt skóf að. Björgunarsveitarmenn komu fólki til aðstoðar og talsverðan tíma tók að leysa úr flækjum. Í veðrakerfunum við landið háttar svo til að undanfarið hefur víðáttumikil hæð verið fyrir austan landið og lægðir suður í hafi. Samspil þessara reginafla hefur aftur skapað stífa langvarandi austanátt; þann kraft sem á síðustu vikum hefur étið svo úr Reynisfjöru í Mýrdal að þar hefur flest breyst á skömmum tíma. „Skafrenningur undir Eyjafjöllum er hreint ekki algengur en þegar átt stóð af austri fór allt á hreyfingu,“ segir Einar Sveinbjörnsson. „Þekkt er að í Mýrdal verða gjarnan snörp hitaskil og nú ollu þau snjókomu og krapa. Inn við jökul var um það bil 10 stiga frost en suður í hafi, kannski 10-20 mílur úti, var 6-7 gráðu heitur sjór. Við þessar aðstæður getur snjóað mikið, gjarnan á köflum frá Pétursey og austur á Mýrdalssand og þetta er alls ekki fordæmalaust. Til eru margar frásagnir frá fyrri tíð um mikla snjókomu í Víkurþorpi svo þorpið hefur nánast farið á kaf í miklu fannfergi.“ Fjöldi bíla tepptist í þessum veðurhvelli helgarinnar og stóðu björgunarsveitarmenn frá Hellu, Hvolsvelli og í Mýrdal í ströngu við að veita þeim liðsinni. Fleiri komu að aðgerðum. Mál manna er að fyrrum þegar svona aðstæður sköpuðust hafi aðstæður gjarnan verið viðráðanlegri og þá hafi fólk einfaldlega beðið veðurofsann af sér. Í dag séu mun fleiri á ferðinni, gjarnan erlendir ferðamenn á bílaleigubílum sem ókunnir eru aðstæðum svo sem að á Íslandi er allra veðra von – og aðstæður stundum illviðráðanlegar eins og sást vel um helgina. Heimafólk komst á þorrablót „Þetta er hvellur sem verður lengi í minnum hafður,” segir Þorsteinn Jónsson björgunarsveitarmaður á Hvolsvelli. „Við vorum ræstir út síðdegis og vorum komnir austur undir Eyjafjöll um það bil klukkustund síðar. Þá tók við mikil vinna að losa um bíla en þeir voru þarna í hundraðatali. Þetta var um það bil 4-5 tíma verkefni og þegar því lauk tók við aðgerð niðri í Landeyjum. Það sem stendur upp úr er að þegar bílar voru farnir af veginum undir Eyjafjöllum gat heimafólk komist leiðar sinnar og farið á þorrablótið sem haldið var í félagsheimilinu Heimalandi. Bíll með flutningakost á svæðið náði líka í tæka tíð, svo Eyfellingar fengu sitt súrmeti refjalaust.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Allt var á hreyfingu í óveðri undir Eyjafjöllum Kennedy parið vaknar til lífsins á Disney+ Máté Dalmay selur 107,9 milljóna íbúð Myndskeið: Forsetinn í miklum vandræðum Fjórir unglingar grunaðir um morð Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjögur ár í foraði stríðsins Gullhúðun í nýju frumvarpi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar „Fólk lítur á hendurnar á mér“ 40 milljarða búhnykkur „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Biðla til almennings að fóðra ekki fugla í görðunum Einn fluttur á bráðamóttöku Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Frystir um allt land í kvöld Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Nýjast á mbl.is » Allt var á hreyfingu í óveðri undir Eyjafjöllum Kennedy parið vaknar til lífsins á Disney+ Máté Dalmay selur 107,9 milljóna íbúð Myndskeið: Forsetinn í miklum vandræðum Fjórir unglingar grunaðir um morð Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Fjögur ár í foraði stríðsins „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Mest lesið Í gær Í vikunni Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar „Fólk lítur á hendurnar á mér“ 40 milljarða búhnykkur „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun Biðla til almennings að fóðra ekki fugla í görðunum Einn fluttur á bráðamóttöku Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Frystir um allt land í kvöld Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi

Share this article