Erlent | mbl | 24.2.2026 | 10:32 | Uppfært 10:54 Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Kristrún var í hópi þjóðarleiðtoga sem lögðu blóm við minnismerki um hina föllnu. mbl.is/Eyþór Karl Blöndal [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Úkraína Segir að Pútín hafi ekki náð markmiðum sínum Fallinna minnst í Kænugarði Fjögur ár í foraði stríðsins Þurfa 72.200 milljarða króna Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar » Fleiri tengdar fréttir „Ég var hér fyrir ári síðan,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að lokinni minningarathöfn um fallna úkraínska hermenn í Kænugarði í morgun. Fjögur ár eru í dag liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Upphafssókn Rússa var hrundið og síðan hefur stríðið staðið í austurhluta landsins án þess að Rússum hafi orðið mikið ágengt. Stríðinu hefur hins vegar fylgt mikið mannfall, sérstaklega í röðum Rússa, og gríðarleg eyðilegging. Kristrún sést hér fyrir miðju ásamt Kristen Michal, forsætisráðherra Eistlands, og Jonas Gahr Støre við minningarathöfnina í dag. mbl.is/Eyþór Sársaukafullt stríð „Það er ótrúlegt að koma hingað og upplifa að svona lítið hafi í raun breyst á einu ári hvað varðar landsvæði og hvernig Rússum hefur til tekist nema að fleiri hafa fallið,“ sagði Kristrún. „Það er auðvitað átakanlegt að upplifa það að á heilu ári hafi lítið annað gerst en að fleiri hafa fallið. Að því leyti er þetta en áhrifaríkara en fyrir ári því að það hellist yfir mann hvað þetta er í rauninni ótrúlega sársaukafullt stríð fyrir Úkraínumenn.“ Kristrún lagði áherslu á skýlausan stuðning Íslands við Úkraínu og undirstrikaði mikilvægi þeirra fórna, sem Úkraínumenn færðu. Frétt af mbl.is Fallinna minnst í Kænugarði Selenskí Úkraínuforseti og eiginkona hans, Olena Selenska, ásamt Alexander Stubb Finnlandsforseta. mbl.is/Eyþór Berst fyrir tilverurétt ríkja „Boðskapurinn sem ég kem með hingað er að Ísland stendur með Úkraínu og áttar sig á því að Úkraína er að berjast fyrir meiru en bara sjálfri sér,“ sagði Kristrún. „Hún er að berjast fyrir tilverurétt ríkja og að landamæri séu virt, fullveldi sé virt og Rússland komist ekki upp með það að hegða sér með þessum hætti gagnvart neinu ríki í heiminum. Þannig að það er gríðarlega mikið í húfi hérna og það skiptir máli að við stöndum með Úkraínu.“ Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, leiddi athöfnina í morgun ásamt konu sinni, Olenu. Til Kænugarðs eru komnir leiðtogar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna auk forustumanna Evrópusambandsins og frammámanna víða að, þar á meðal utanríkisráðherra Bretlands og Póllands. Leiðtogar Norðurlanda ásamt Ursulu von der Leyen. mbl.is/Eyþór Látlaus og hátíðleg athöfn Athöfnin hófst á því að leiðtogarnir, þeirra á meðal Kristrún, tóku við ljóskerum með logandi kertum og fylgdu Volodimír Selenskí og Olenu konu hans að hinum síbreytilega og átakanlega minnisvarða um hina föllnu verjendur Úkraínu í stríðinu við Rússa. Þar lögðu þeir ljóskerin frá sér við haf af úkraínskum fánum, sem standa við myndir af föllnum hermönnum. Í morgun sóttu leiðtogarnir athöfn í kirkju heilagrar Soffíu hér í Kænugarði. Athöfnin var látlaus og hátíðleg. Miklir frosthörkur hafa verið í borginni undanfarið. Rússar hafa ráðist á orkuinnviði í Úkraínu og mun ekkert orkuver vera ólaskað eftir orrahríðina. Skammta hefur þurft rafmagn, þar á meðal í höfuðborginni, og hafa borgarbúar þurft að beita mikilli útsjónarsemi til að halda á sér hita. Í dag er hins vegar milt veður og hiti yfir frostmarki og þótt skýjahula sé á himni er bjart yfir borginni. Athöfnin í kirkju heilagrar Soffíu var látlaus og hátíðleg. mbl.is/Eyþór Pútín ekki náð markmiðum sínum Volodimír Selenskí sagði í ræðu í sjónvarpi í tilefni af því að fjögur ár eru frá innrásinni að Pútín hefði ekki náð markmiðum sínum. „Hann hefur ekki brotið úkraínsku þjóðina á bak aftur. Hann hefur ekki unnið stríðið. Við höfum varið Úkraínu og munum gera það áfram til að tryggja frið og öryggi.“ Frétt af mbl.is „Eins og við værum frummenn“ Tengdar fréttir Úkraína Segir að Pútín hafi ekki náð markmiðum sínum Fallinna minnst í Kænugarði Fjögur ár í foraði stríðsins Þurfa 72.200 milljarða króna Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Í sárum eftir andlát föður síns Edition-málið sent aftur til lögreglu Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Níundi sigurinn í röð kom í stórslag Allt var á hreyfingu í óveðri undir Eyjafjöllum Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Hver er myrkraprinsinn Mandelson? „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Mest lesið Í gær Í vikunni Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar 56 ára gamalt barnshvarf skoðað á ný Reiner kveðst saklaus Fallinna minnst í Kænugarði Hver er myrkraprinsinn Mandelson? Skotinn til bana í Eskilstuna Eva Joly vill leiða rannsóknarnefnd um Epstein Fyrrum starfsmaður ICE segir þjálfun „í molum“ Mandelson látinn laus gegn tryggingu Fjögur ár í foraði stríðsins „Eins og við værum frummenn“ Það eina sem heldur Pútín á lífi Rannsókn á andláti 15 ára drengs hætt „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Peter Mandelson handtekinn Lét skattgreiðendur borga fyrir nudd Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Myndin af Andrew hengd upp í Louvre-safninu Óöld í Mexíkó: Viðbúnaðarstig hækkað Segir Pútin hafa hafið þriðju heimsstyrjöldina Andrew laus en enn til rannsóknar Það eina sem heldur Pútín á lífi Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Nýju blokkirnar svo ljótar að lögreglan rannsakar þær „Eins og við værum frummenn“ Skildi kærustuna eftir á fjallinu Rannsókn á andláti 15 ára drengs hætt Hótar að sökkva stærsta herskipi sögunnar Sendi Trump 9 milljarða dala reikning Myndskeið: Trump segir Obama hafa kjaftað frá Nýjast á mbl.is » Í sárum eftir andlát föður síns Edition-málið sent aftur til lögreglu Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Níundi sigurinn í röð kom í stórslag Allt var á hreyfingu í óveðri undir Eyjafjöllum Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 40 milljarða búhnykkur Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Smáríkið á uppleið, ÁTVR missir flugið Sýnir hvað það þarf lítið til Mest lesið Í gær Í vikunni Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar 56 ára gamalt barnshvarf skoðað á ný Reiner kveðst saklaus Fallinna minnst í Kænugarði Hver er myrkraprinsinn Mandelson? Skotinn til bana í Eskilstuna Eva Joly vill leiða rannsóknarnefnd um Epstein Fyrrum starfsmaður ICE segir þjálfun „í molum“ Mandelson látinn laus gegn tryggingu Fjögur ár í foraði stríðsins „Eins og við værum frummenn“ Það eina sem heldur Pútín á lífi Rannsókn á andláti 15 ára drengs hætt „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Peter Mandelson handtekinn Lét skattgreiðendur borga fyrir nudd Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Myndin af Andrew hengd upp í Louvre-safninu Óöld í Mexíkó: Viðbúnaðarstig hækkað Segir Pútin hafa hafið þriðju heimsstyrjöldina Andrew laus en enn til rannsóknar Það eina sem heldur Pútín á lífi Segir sjúkraskip á leið til Grænlands Nýju blokkirnar svo ljótar að lögreglan rannsakar þær „Eins og við værum frummenn“ Skildi kærustuna eftir á fjallinu Rannsókn á andláti 15 ára drengs hætt Hótar að sökkva stærsta herskipi sögunnar Sendi Trump 9 milljarða dala reikning Myndskeið: Trump segir Obama hafa kjaftað frá