Innlent | mbl | 24.2.2026 | 20:07 „Yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð“ Karl Blöndal [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Úkraína Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð Starmer: Við erum ekki áhorfendur að fylgjast með utan frá Myndskeið: „Það er alveg gríðarlega mikið í húfi“ Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Segir að Pútín hafi ekki náð markmiðum sínum » Fleiri tengdar fréttir „Það er yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð og upplifa það að lítið hefur gerst nema að fleiri menn og konur hafa fallið,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sem stödd er í Kænugarði í Úkraínu nú þegar þess er minnst að fjögur ár eru í dag liðin frá innrás Rússa í landið þennan dag árið 2022. Bendir forsætisráðherra á að rússneski innrásarherinn hafi aðeins náð einu prósenti landsvæðis undir sína stjórn til viðbótar við fyrri landtöku í nágrannaríkinu og misst við það um hálfa milljón manna auk allrar þeirrar blóðtöku sem úkraínska þjóðin hafi mátt þola. Segir hún framlög bandamanna Úkraínu skipta gríðarmiklu máli og her landsins standi nú styrkari fótum en áður í krafti þeirra. Fótunum kippt undan venjulegu fólki Spurð út í hvað hún sjálf komi með til Úkraínu bendir hún á að í samræmi við þingsályktunartillögu sem allir flokkar hafi lagt blessun sína yfir hafi íslensk stjórnvöld látið sex milljarða króna af hendi rakna til þjóðarinnar stríðshrjáðu og í dag tilkynni hún, fyrir hönd stjórnvalda um 800 milljóna króna stuðning sem renni til orkuinnviða í Úkraínu. Frétt af mbl.is Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð „Heilu heimilin, fyrirtækin og skólarnir eru nú án hita og rafmagns og við erum að styðja við þetta,“ segir Kristrún sem í dag heimsótti úkraínskt orkuver sem varð fyrir árás Rússa og hafi verið ótrúlegt að verða þar vitni að þeirri grimmd sem búi að baki árásum þeirra. „Rússar eru sérstaklega að miða á svona orkuver og með því að kippa fótunum undan venjulegu fólki,“ segir Kristrún og segir þá mikilvægt að bregðast strax við og fara í viðgerðir á því sem skaðast hafi. „Láta ekki deigan síga og þá þurfum við að gera okkar til að styðja við þau og það er ekki bara íslenska ríkið og Íslendingar í heild sinni sem eru að gera það, við sjáum líka orkufyrirtæki ferja hér yfir í gámum spennubreyta, rafala og fleira til að styðja við þessa starfsemi,“ segir Kristrún. Af því geti þjóðin verið stolt segir ráðherra enn fremur og telur upp nokkur þeirra verkefna sem Ísland og Atlantshafsbandalagið NATO hafi komið að og styrkt hafi stöðu Úkraínumanna verulega. Bandaríkjamanna saknað á samkomunni Segist hún aðspurð sakna nærveru Bandaríkjamanna í Kænugarði í dag. „Þeir hafa verið hluti af bandalagi viljugra þjóða. Evrópa áttar sig alveg á því að þetta stríð er í hennar bakgarði. Auðvitað hefur fjöldinn allur af góðum fundum verið haldinn með Bandaríkjamönnum þar sem aðkoma þeirra hefur verið útlistuð og fólk er auðvitað að vinna eftir því prógrammi. En það breytir því ekki að Evrópa mun þurfa að stíga fastar inn og þess vegna eru meðal annars Evrópuleiðtogar að tala sín á milli hér inni,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að lokum. Tengdar fréttir Úkraína Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð Starmer: Við erum ekki áhorfendur að fylgjast með utan frá Myndskeið: „Það er alveg gríðarlega mikið í húfi“ Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Segir að Pútín hafi ekki náð markmiðum sínum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stórleikur Óðins dugði ekki til í Evrópudeildinni „Yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð“ Shakira á leið til Mexíkó og gefur miðana Torsóttur sigur Stjörnunnar í Garðabæ Norðmaðurinn allt í öllu hjá Atlético Madrid Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Fjögur ár í foraði stríðsins Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Stórleikur Óðins dugði ekki til í Evrópudeildinni „Yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð“ Shakira á leið til Mexíkó og gefur miðana Torsóttur sigur Stjörnunnar í Garðabæ Norðmaðurinn allt í öllu hjá Atlético Madrid Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð“ Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu