Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Reyndu að smygla kílói af kókaíni í borðplötu

Read Full Article →

Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá karlmenn fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Þeir eru sakaðir um að hafa í sameiningu flutt inn eitt kíló af kókaíni til sölu hér á landi. Fíkniefnin fundust í steyptu borði sem flutt var hingað frá Bandaríkjunum í ágúst 2024. Lögregla fjarlægði kókaínið úr borðinu meðan það var enn í póstmiðstöðinni á Stórhöfða í Reykjavík. Þangað kom maður, sótti borðið og flutti á bifreiðaverkstæði í grenndinni. Þar staldraði borðið þó ekki lengi við því annar maður sótti það og fór með í bílskúr í Álfheimum. Þangað kom þriðji maðurinn og hjálpuðust þeir að við að opna sendinguna, samkvæmt ákæru. Kókaín. Mynd úr safni.Shutterstock

Share this article