Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslensk tónlistardagskrá hjá BBC: „Ég held að flestir séu mjög tilbúnir að fara þvert á flokka innan tónlistar“

Read Full Article →

Íslensk tónlist var í öndvegi hjá breska ríkisútvarpinu um helgina á sérstökum tónleikum þar sem Sinfóníuhljómsveit BBC flutti verk eftir fjögur íslensk tónskáld. Þetta voru verk eftir Báru Gísladóttur, Daníel Bjarnason og Valgeir Sigurðsson. Svo var verkið Another Kind of Peace eftir Ólaf Arnalds heimsfrumflutt. Tónleikarnir Total Immersion: Icelandic Chill voru hluti af dagskrá BBC þar sem fjallað var yfir heilan dag um íslenska tónlist. Bára Gísladóttir lék á kontrabassa og flutti eigið verk, Hringlu, ásamt hljómsveitinni undir stjórn Christian Karlsen í Barbican Centre á sunnudagskvöld. Bára ræddi við menningarvef RÚV um tónleikana og hvað gæti valdið því að íslensk tónlist veki svo mikla athygli á erlendri grundu. „Þetta var mikil upplifun og gaman að fá að spila með þessari hljómsveit og á þessum stað. Þetta var Bretlandsfrumflutningur á Hringlu, kontrabassakonsertnum mínum,“ segir Bára en öll verkin á tónleikunum voru frumflutt í Bretlandi þetta kvöld. Bára segist hafa verið mjög vel undirbúin fyrir tónleikana og hafi því liðið vel meðan á flutningnum stóð. „Ég gat leyft mér að fara alveg inn í músíkina eins og ég vildi gera.“ Það er margt sem þarf að huga að þegar spilað er með svo stórri hljómsveit en Bára er vanari að spila með minni sveitum eða ein. „Það var mikið verið að leika með intentansjónið og hringla með það sem er skemmtilegt en líka áskorun. Ég held að það hafi bara heppnast ágætlega hjá okkur.“ „Ég hef stundum áhyggjur af því að þetta sé óverðskuldað“ Það kom Báru mjög á óvart að verk hennar var valið á tónleikana en hún telur skipuleggjendur hafa viljað vera með fjölbreytta dagskrá sem endurspeglaði íslenska tónlistarsenu. Mikið hefur farið fyrir íslenskri tónlist víða um heim í öllum greinum, hvort sem það er á sviði dægurtónlistar, klassískrar eða kvikmyndatónlistar svo dæmi séu nefnd. „Ég hef stundum áhyggjur af því að þetta sé óverðskuldað,“ segir Bára. „Af því að maður finnur að það er mikið látið með íslenska tónlist, og kannski bara listir yfirhöfuð, erlendis.“ Spurning sem hún fékk oft um helgina var hvers vegna íslensk tónlist væri svona „hipp“. „Maður getur ekki svarað fyrir tónlistarsenuna á Íslandi eins og hún leggur sig en það sem mér finnst gera íslenska tónlist sérstaka er þessi smæð sem verður til þess að fólk í tónlist á Íslandi er tilbúið að leika með alls konar hljómsveitum og í alls konar verkefnum. Ég held að flestir séu mjög tilbúnir að fara þvert á flokka innan tónlistar.“ Þetta skapi líf sem sé alveg sérstakt í íslensku samfélagi. Íslenskir tónlistarmenn séu minna uppteknir af flokkum og stefnum miðað við í öðrum löndum sem Bára hafi verið í. „Það veldur kannski ákveðnu frelsi innan sköpunar sem er náttúrulega mjög sérstakt.“ „Kannski er þetta eitthvað sem þykir eftirsóknarvert og áhugavert.“ Bára Gísladóttir lék með Sinfóníuhljómsveit BBC um helgina á tónleikum til heiðurs íslenskri tónlist. Hún óttast stundum að sá mikli áhugi á íslenskri tónlist sé óverðskuldaður en telur ástæðuna vera hve frjálslega Íslendingar flakka milli greina. Bára er búin að vera á flakki síðan í október að flytja tónlist sína og kom til að mynda fram á Myrkum músíkdögum í lok janúar og frumflutti þar verk sitt Dægrin. Flutningur hennar á kontrabassa í sýningunni Óresteiu í Þjóðleikhúsinu vakti einnig mikla athygli. Bára er á leiðinni heim til Kaupmannahafnar þar sem hún er búsett. „Ég ætla bara að vera þar sem mest. Ég er ólétt af okkar þriðja barni og langar bara svolítið að vera heima við. Núna taka við tónsmíðar og ég er að spila minna næstu mánuði.“ Menningarvefur RÚV ræddi við Báru Gísladóttur.

Share this article