Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, segir deildarstjóra samgangna hjá Reykjavíkurborg fara með rangt mál þegar kemur að vöruafhendingum í nágrannalöndum. Hann vísar í grein sem birtist á vef Vísis í morgun þar sem rætt var við Hjalta Vignisson, eiganda 2Guys, sem segir að starfsmenn veitingastaðarins geti varla affermt vörur án þess að eiga í hættu á að fá stöðumælasekt. Hjalti segist orðinn langþreyttur á skilnings- og áhugaleysi frá Reykjavíkurborg og segir að Bílastæðasjóður hafi þegar sektað fyrirtækið um 60 þúsund krónur fyrir það eitt að mæta með vörur sem eru nauðsynlegar fyrir reksturinn. Hinn umræddi veitingastaður 2Guys er staðsettur á Laugavegi, nánar tiltekið á horninu andstætt Hlemmi. Hjalti segir að þar sé vörulosun einungis heimiluð á milli kl. 07:00 og 11:00 á morgnana. Sjá einnig Borgarfulltrúar opnir fyrir notkun dróna Bjarni Rúnar Ingvarsson deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg svaraði fyrirspurn Vísis og sagði að sambærileg reglugerð væri við lýði í nágrannalöndum, til að mynda á Strikinu í Kaupmannahöfn. Þar sé vöruafhending einungis heimiluð til kl. 11:00 og bætir hann við að á ákveðnum dögum sé einungis heimilt að afhenda vörur til klukkan 09:00. Einar svarar þessari fullyrðingu með því að benda á að þessi tímarammi eigi aðeins við um stærri trukka sem mæti með pallettur en ekki um minni bíla sem þurfi að skjótast með ákveðna vöru sem gleymdist í pöntun. Danir mun sveigjanlegri Samkvæmt reglugerðum í Kaupmannahöfn er heimilt að fara með skammtímavöruafhendingar við verslunargötur og innkeyrslur svo lengi sem um sé að ræða stutt stopp, þá annaðhvort til að sækja eða skila vöru. Þau svæði eru gjarnan merkt með sérstökum skiltum og litum á gangstéttinni eða við akbraut en borgaryfirvöld taka það skýrt fram að reglur um vöruafhendingar séu yfirleitt mun sveigjanlegri en þær reglur sem gilda um almenn bílastæði. Reglur um vöruafhendingar í Kaupmannahöfn. © Skjáskot (Skjáskot) „Þetta sem er að gerast hjá 2Guys er að gerast hjá öllum veitingastöðum í Reykjavík og það væri óskandi að opinberir starfsmenn væru með staðreyndirnar á hreinu þegar þeir kæmu með svona fullyrðingar um hvernig þetta er í öðrum borgum.“ „Það er ekki sanngjarnt gagnvart þessum veitingastöðum að það séu bara einhverjir veiðimenn á vegum Bílastæðasjóðs sem bíða eftir sendingum.“ Hann segir það fullkomlega skiljanlegt að takmarka stærri vöruflutninga en telur núverandi framkomu ekki sanngjarna gagnvart veitingastöðum í miðborginni sem glími nú þegar við erfitt rekstrarumhverfi. „Það er ekki sanngjarnt gagnvart þessum veitingastöðum að það séu bara einhverjir veiðimenn á vegum Bílastæðasjóðs sem bíða eftir sendingum til að geta lagt aukaálögur á þá sem eru að reyna að halda uppi líflegri miðborg, sem á að vera stolt okkar.“ Einar undrar sig einnig á fullyrðingum Bjarna sem segir að veitingastaðir gætu einnig nýtt sér aðra samgöngumáta til vöruafhendinga utan sérstaks vöruafhendingartíma, til að mynda með svokölluðum Cargo-hjólum. „Fyrir utan það fjárhagslega ofanálag að segja veitingastöðum að fjárfesta í nýjum Cargo-hjólum þá eru birgjar veitingastaða ekki staðsettir í miðborginni. Þeir eru flestallir staðsettir uppi á Bíldshöfða, Stórhöfða og við Bitruháls.“